Blöðrur og fjör

Stundum eru nokkrar blöðrur og frauðplast allt sem þarf til að fá góða hreyfingu, gera daginn skemmtilegan og bregða á leik. 🎈 María sjúkraþjálfari hér í Mörk fór um húsið og bauð upp á hreyfingu dagsins með þessum hætti. Allir skemmtu sér konunglega.

Heimilisfólk sækir sumarblómin

Það ríkir alltaf skemmtilegt andrúmsloft þegar heimilisfólk í Ási sækir sumarblóm til að hafa hjá sér. 🌹 Það er úr nægu að velja, litrík og falleg blóm sem gleðja svo sannarlega. Það er svo notalegt að puða aðeins í mold og gefandi að fylgjast með blómunum vaxa og dafna

Lambið fékk ótal faðmlög frá heimilisfólkinu

Við fengum eftirminnilega heimsókn nýlega þegar lambið Kári kom í heimsókn í vinnuna með henni Ósk Reynisdóttur. Lambið býr á Hraðastöðum í Mosfellsdal en þar er lítill húsdýragarður.🐑 Lambið er svo sannarlega mannelskt og hefur ekkert á móti faðmlögum og knúsi og það fékk svo sannarlega nóg af því hjá heimilisfólkinu. Andlit ljómuðu og það er öruggt að margir eiga eftir að rifja upp lengi vel þessa dásamlegu heimsókn

Hátt á annað þúsund pönnukökur

Klukkan átta í morgun mættu þeir Ingvar Már yfirmatreiðslumeistari Grundarheimilanna og Benidikt bakari í eldhúsið í Mörk til að baka fyrir morgundaginn, 17. júní. Alls baka þeir á um tíu pönnukökupönnum um 1.700 pönnukökur sem heimilisfólk, starfsfólk og íbúar hjá Íbúðum 60+ fá að gæða sér á eftir matinn eða með kaffinu á morgun. Þeir búast við að klára baksturinn um hálfþrjú í dag

Gönguferð í sólinni

Í sumar er heimilisfólki í Mörk boðið í gönguferðir á miðvikudögum og sólin skein svo sannarlega nú í vikunni þegar komið var út í garð. Dásamleg samvera og Rebekka mætti með gítarinn sinn og það var sungið af innlifun.

Sprækar í sjúkraþjálfun

Það er alltaf nóg um að vera í sjúkraþjálfuninni á Grund. Hér eru það æfingar með þessum heiðurskonum. Góða helgi.

Tónleikar í Ási

Það var ánægjuleg stundin nú í vikunni þegar Þórdís Emilía og Jakob Grybos komu og glöddu okkur með dásamlegum tónleikum. Þórdís lék á fðlu og Jakob á píanó. Léku þau klassíska tónlist við mikinn fögnuð viðstaddra.

Vortónleikar Grundarkórsins

Það voru gamlir og góðir sumarsmellir í bland við önnur lög sem ómuðu úr hátíðasal Grundar þegar Grundarkórinn hélt vortónleika sína nú í vikunni. Kórinn er nú kominn í sumarfrí og í haust byrja vikulegar æfingar aftur. Þá eru eins og endranær aðstandendur hjartanlega velkomnir í kórinn sem og starfsfólk og velunnarar heimilisins.

Prjónaði peysu á barnabarnið

Heimiliskonan Steinunn Sveinsdóttir gerði sér lítið fyrir og prjónaði Íslandsbankapeysu fyrir dótturdóttur sína. Hún átti stundum í svolitlu strögli með munstrið en mætti galvösk í iðjuna og í sameiningu fundu snillingarnir þar útúr þessu með henni. Hún bætti svo um betur og prjónaði sokka og húfu í stíl. Steinunn var eljusöm og frábært framtak hjá henni því að hún segir sjálf frá því að hún hafi á tímabili glatað færninni við að prjóna en neitað að gefast upp.🌞 Alltaf glöð og jákvæð hún Steinunn. Og hér er hún með dótturdóttur sinni Silvu á mynd sem er auðvitað alsæl með fallegu peysuna sína

Tónlist í umönnun á Grundarheimilunum

"Það hefur sýnt sig að tónlist eykur vellíðan fólks og þegar við erum að tala um fólk með heilabilun eykurtónlist einnig virkni og minnkar depurð,“ segir Magnea Tómasdóttir,söngkona og tónlistarkennari í viðtali í Morgunblaðinu í morgun. Grundarheimilin hlutu styrk frá Oddfellowsystrum í Rebekku stúku nr. 1, Bergþóru til að gera átak í að upplýsa um hvernig hægt er að nota tónlist í umönnun með stórkostlegum árangri. Meðal þess sem Magnea gerir er að halda fyrirlestra fyrir starfsfólk Grundarheimilanna og aðstandendur um notkun tónlistar í daglegu lífi.