21.09.2025			
	
			Í síðustu viku var réttardagur í Mörkinni. Íbúar komu saman í hádeginu þar sem íslensku sauðkindinni var hampað, snæddu kjöt og kjötsúpu og fengu sér snafs með. 
Ekki spillti fyrir að í heimsókn komu Eyjabræður og sungu. Þetta eru félagarnir Þorbjörn Geir Ólafsson og Daði Heiðar Sigurþórsson en þeir eru báðir ættaðir frá Flatey á Breiðafirði og þræl vanir bæði söng og spila á gítar.
 Guðni Ágústsson gladdi íbúa með skemmtilegri frásögn um ágæti íslensku sauðkindarinnar sem hefur haldið okkur Íslendingum á lífi mann fram af manni. Hann komst skemmtilega að orði eins og jafnan og er vel að sér þegar kemur að réttum. Honum var tíðrætt um Skeiðarréttir og sagði frá því  þegar Höskuldur bruggari færði þeim réttarvinið Höskuld en svo hét landinn og bætti við að  eitt haustð hefðu komið 18 börn undir, slíkt var fjörið.
Hann var sannfærandi þegar hann sagðist hafa verið besti landbúnaðarráðherra á Íslandi og í Evrópu og þó víðar væri leitað og fór svo með vísu sem Jóhannes á Gunnarsstöðum kvað: 
Allt sem vinum okkar brást
Allt sem mátti klaga.
Allt sem Drottni yfirsást
Ætlar Guðni að laga.
	 
	
			
		
		
			
					18.09.2025			
	
			Yrsa Roca Fannberg hefur í mörg ár unnið við umönnun og sem sjúkraliði á Grund en hun er einnig kvikmyndaframleiðandi.  Undanfarin ár hefur hún unnið að gerð myndarinnar Jörðin undir fótum okkar sem öll gerist hér á Grund. Heimilismenn eru aðalleikararnir og þeir eru á þriðja tug.
Myndin hlaut í gær aðalverðlaun dómnefndar á einni virtustu heimildamyndahátíð i Asíu sem haldin var í Suður_Kóreu. Það var Yrsa sem sjálf tók við verðlaununum. Myndin verður frumsýnd á Riff kvikmyndahátíðinni þann 2. október næstkomandi og sýnd síðan í Bíó Paradís frá 6. október. Heimilismenn Grundar fá tækifæri til að sjá myndina áður en hún fer í almenna sýning. Verður myndin sýnd þann 3. október í hátíðasal heimilisins.
Við óskum Yrsu hjartanlega til hamingju með þessa viðurkenningu.
	 
	
			
		
		
			
					29.08.2025			
	
			Við eigum þetta forláta hjól hér í Mörk sem tilvalið er að nota á sólríkum og fallegum dögum. María sjúkraþjálfari greip tækifærið og hjólaði í Elliðaárdalinn með heimilismann. 🚲
 Á leiðinni sáu þau fossa, ár, dúfur og minka. Svo var auðvitað stoppað í ísbúð á leiðinni til baka
	 
	
			
		
		
			
					29.08.2025			
	
			Starfsfólkið í iðjunni hér í Mörk ákvað að nýta sólargeislana, opna dyrnar og færa starfið út. Rebekka tók upp gítarinn og það var boðið upp á söngstund í góðu veðri. 🥰
Reyndar fóru skýin af og til fyrir sólu en það var ágætt að fá smá golu inn á milli. Þá var bara sungið ennþá hærra til að hlýja sér. Nokkrir komu út á svalirnar á næstu hæðu og tóku þátt í söngnum.
Ljúf stund og gefandi fyrir alla. 
	 
	
			
		
		
			
					29.08.2025			
	
			Það er sérstaklega dásamlegt þegar sólin skín skært síðsumars. Haustið á næsta leyti en smá framlenging á blessuðu sumrinu með þessum sólardögum. Heimilisfólk og starfsfólk var ekkert að tvínóna við hlutina og dreif sig út á svalir til að spjalla og njóta góða veðursins.
	 
	
			
		
		
			
					27.08.2025			
	
			Í dag hafa Heilbrigðisstofnun Suðurlands og Hveragerðisbær gert samning við Ás hjúkrunarheimili um samþætta heimaþjónustu við íbúa í Hveragerði frá 1. september nk. Verkefnið er tilraunaverkefni sem að byggist á aðgerðaráætlun Gott að eldast sem að er samstarfsverkefni milli Félags- og húsnæðismálaráðuneytis og Heilbrigðisráðuneytis. Ás mun þannig sinna heimahjúkrun og félagslegum heimastuðningi við íbúa Hveragerðisbæjar 60 ára og eldri sem sækja um og fá samþykkta slíka þjónustu. Áður hefur í Ási verið starfrækt dagdvöl ásamt því að þaðan hafa íbúar Hveragerðisbæjar sem óskað hafa eftir fengið mat sendan heim.
	 
	
			
		
		
			
					22.08.2025			
	
			Guðný Alma, sem er sumarstarfsmaður hér hjá okkur í Ási, söng fyrr í sumar fyrir heimilismenn í Bæjarási. Nýlega mætti hún aftur og söng við undirleik unnusta síns Péturs Nóa Stefánssonar. 🥰
Að þessu sinni söng hún fyrir heimilismenn í Ásskála. Viðtökurnar voru frábærar enda syngur Guðný Alma eins og engill. 👏
	 
	
			
		
		
			
					22.08.2025			
	
			Í síðustu viku var haldin sumarhátíð í Mörk. 
Eins og vera ber þegar hátíð er annarsvegar var boðið upp á allskonar leiki, andlitsmálningu og  blaðrarinn bjó til blöðrufígúrur. Edhúsið bauð upp á dýrindis veitingar og Guðrún Árný hélt uppi stuðinu og söng með heimilisfólki, starfsfólki, aðstandendum og íbúum hjá Íbúðum 60+.😍
 Mikil gleði var í loftinu og sumrinu fagnað.😍
	 
	
			
		
		
			
					22.08.2025			
	
			Sumri var fagnað með hátíð hér á Grund nýlega. 🥰 
Andlitsmálning, blaðrarinn sem bjó til fígúrur fyrir börnin, söngur og fallegir tónar, sumarlegar veitingar,  en fyrst og fremst gleði og samvera.
 Takk öll fyrir komuna. Þetta var frábær dagur.🌞
	 
	
			
		
		
			
					21.08.2025			
	
			Bingó er alltaf vinsælt og flestir spenntir að taka þátt. Heimilismenn á hjúkrunarheimilinu voru yfir sig hrifnir af tilbreytingunni  þegar boðið var upp á tónlistarbingó.  🥰
Það er eflaust stutt í að aftur verði boðið upp á bingó þar sem tónlist kemur við sögu.