11.02.2026
Þegar fólk flytur á Grundarheimilin er afar hjálplegt að fá upplýsingar um heimilismanninn sem veita innsýn í líf hans áður en flutt var á Grund, Mörk eða í Ás.
Oft er minnið farið að svíkja þegar flutt er á hjúkrunarheimili og þá er frábært fyrir starfsfólk að geta flett myndaalbúmi þar sem svipmyndum er brugðið upp af ævi viðkomandi með texta þar sem fram koma nöfn fólks sem er á myndum og skyldleiki eða frekari upplýsingar um það sem myndin hefur að geyma.
Þannig getur ágrip af sögu heimilismanns oft verið kveikja að umræðum og starfsmenn geta kynnst heimilismanninum ögn betur en ella með því að sjá myndir af honum frá liðnum árum eða fjölskyldunni. Hvaðan er hann, hverjir skipta hann máli, hver var starfsvettvangur, hvaða áhugamál hafði hann og svo framvegis.
Veggspjald hefur reynst vel
Líklega miklar fólk stundum fyrir sér að útbúa lífssögu.+Á netinu er hægt að útbúa skemmtilegar myndabækur. En veggspjöld eru líka viðráðanleg og oft eru skemmtilegustu lífssögunar einmitt þannig. Þá er hægt að ljósrita myndir úr ævi heimilismanns og líma á veggspjald með stuttum texta.
Við heyrðum sögu frá fjölskyldu eins heimilismanns. Barnabörnin fengu það hlutverk að útbúa lífssögu ömmu til að hengja upp á vegg. Börnin áttu dýrmætar stundir með ömmu sem rifjaði upp með þeim gamla tíma og afraksturinn varð persónulegt veggspjald um ömmu.
Tilvalið er svo að leyfa veggspjaldinu að hanga uppi á vegg í herbergi ömmu eða afa.
Við fengum góðfúslegt leyfi til að birta hér nokkur dæmi um hvernig hægt er að útbúa svona veggspjöld eða síður í albúm.