30.07.2021
hann er fullkominn eins og ég, söng Bubbi Morthens fyrir nokkrum áratugum. Ferlega flottur texti hjá þessum frábæra tónlistarmanni. Hárbeitt ádeila um fordóma margra á þeim tíma í garð samkynhneigðra. Fordóma sem því miður fyrirfinnast enn þann dag í dag, en í talsvert minna mæli en áður. Eitt af því sem hefur slegið á þessa fordóma er þrotlaust starf Samtakanna 78 og svo eru það Hinsegin dagarnir sem hafa verið haldnir frá því um aldamótin. Held að Gleðigangan hafi verið upphafið, eða öfugt, skiptir ekki máli.
Við búum í fjölbreyttu samfélagi. Kynhneigð og menning er margskonar. Við erum eins og við erum, tilvitnun í annan frábæran tónlistarmann, Pál Óskar. Sem by the way, ætlar að dvelja á Glitter Grund í ellinni, það tilkynnti hann á tónleikum sínum sem ég sótti með Öldu fyrir nokkrum árum.
Þrátt fyrir viðsjárverða tíma þessi misserin þá höldum við á Grundarheimilunum Hinsegin dagana hátíðlega í dag þó við njótum ekki heimsókna á Grund og heimsóknartakmarkana á hinum heimilunum. Við flöggum Regnbogafánanum víða og kokkarnir okkar bjóða upp á litríkt bakkelsi í anda Hinsegin daganna. Þá verður sýnd heimildarmyndin Fjaðrafok sem fjallar um þróun og þroska Gleðigöngunnar.
Njótum litríks samfélags saman 😊
Kveðja og góða helgi,
Gísli Páll, forstjóri Grundarheimilanna
15.07.2021
Við viljum skerpa hérna á nokkrum atriðum vegna smita í samfélaginu.
Hjúkrunarheimilið er áfram opið en við hvetjum ykkur til að gæta ítrustu árvekni og hafa sóttvarnaráðstafanir í heiðri.
Ekki er ráðlegt að börn og ungmenni komi í heimsókn á þessum tímapunkti. Undanþágur má gera ef barn/ungmenni er nánasti aðstandandi.
Að öllu jöfnu mæti aðeins tveir gestir í heimsókn til íbúa á hverjum tíma nema að höfðu samráði við starfsfólk deildar.
Gestir fara rakleiðis að herbergi íbúa og aftur að útidyrum að heimsókn lokinni.
Gestir mega ekki staldra við í sameiginlegum rýmum heimilis.
Gestir þvo hendur með sápu og spritta áður en gengið er inn á heimili og einnig við brottför.
Gestir mega ekki koma í heimsókn ef þeir:
a. Eru í sóttkví.
b. Eru í einangrun (einnig meðan beðið er niðurstöðu úr sýnatöku).
c. Hafa dvalið erlendis undanfarna daga.
d. Hafa verið í einangrun vegna COVID-19 smits og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift.
e. Eru með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang).
15.07.2021
Það var húsfyllir í nýja matsalnum í Ási fyrir skömmu þegar heimilisfólkið kom þar saman og spilaði bingó.
12.07.2021
Nýlega var haldin sumarhátíð í Ási. Frábær dagur þar sem heimilismenn, aðstandendur og starfsfólk fögnuðu saman sumri og sól…
Hjónin Unnur Birna Björnsdóttir og Sigurgeir Skafti Flosason glöddu viðstadda með frábærum tónlistarflutningi og söng.
Hoppukastali,ís frá Kjörís, sápukúlur, krikket og kubbur glöddu unga sem aldna.
12.07.2021
Heimilisfólkið á 2. hæð í Mörk fékk aldeilis skemmtilega heimsókn í vikunni þegar aðstandandi kíkti við með kettlinga, sem vöktu að sjálfsögðu mikla gleði.