Opið hús í vinnustofunni

Eftir hádegi á mánudögum og miðvikudögum og alla föstudaga koma heimilismenn niður á fyrstu hæð í Mörk og mæta í opið hús vinnustofunnar. Þá er spjallað, sumir prjóna, mála, fletta blöðum eða fást við eitthvað annað sem veitir þeim gleði. Notalegar stundir og allir velkomnir.

Er með vikulegar söngstundir í Mörk

Við erum svo heppin í Mörk að fá reglulega í heimsókn sjálfboðaliða frá Rauða krossinum. Einn þeirra er Steinar Frímannsson harmonikkuleikari. Hann gleður heimilisfólkið vikulega, spilar iðulega lög sem allir þekkja og úr verða notalegar söngstundir.