Það er eins og flestir vita líklega bleikur dagur í dag, vitundardagur á vegum Bleiku slaufunnar og Krabbameinsfélags Íslands.


Á þriðju hæðinni í Mörk var ákveðið að minna rækilega á málstaðinn og allt skreytt hátt og lágt. Að auki var boðið upp á bleikar veitingar og svo klæddust flestir einhverju bleiku.
Frábær tilbreyting og allir sem vettlingi geta valdið tóku þátt í þessari skemmtilegu uppákomu.