Í gær fengum við skemmtilega heimsókn upp á aðra hæð hér í Mörk. Fjórir nemendur úr Verslunarskóla Íslands komu til okkar en þar stendur yfir góðgerðarvika.

Ungmennin eru á fyrsta ári í Versló og buðu upp á stólajóga og spiluðu síðan OlsenOlsen.
Frábær stund og allir ánægðir með þessa notalegu og skemmtilegu tilbreytingu.

Í dag eigum við von á öðrum hópi frá Versló sem ætlar að mæta í morgunstund á fjórðu hæð