Skemmtileg heimsókn

Þau eittu svo sannarlega tilbreytingu hér í Mörk krakkar úr vinnuskóla Reykjavíkur sem komu til okkar og spiluðu fyrir heimilisfólk. Það var þungbúið svo flestir horfðu út um gluggann á þessa hressu krakka en nokkrir fóru út. Hópurinn fer víða og gleður gesti og gangandi með lúðrasveitarhljómum. Frábær heimsókn. Takk fyrir komuna.

Lúðrasveit í heimsókn

Þau lífguðu aldeilis upp á hversdaginn hér á Grund krakkar úr vinnuskólanum sem komu til okkar á Hringbrautina og spiluðu fyrir heimilisfólk. Það blés svolítið svo flestir horfðu út um gluggann á þessa hressu krakka en nokkrir létu sig hafa það og fóru út. Hópurinn fer víða og gleður gesti og gangandi með lúðrasveitarhljómum. Frábær heimsókn. Takk fyrir komuna.

Áttum fimm fulltrúa við útskrift um síðustu helgi

Við á Grundarheimilunum eru stolt að segja frá því að við áttum fimm fulltrúa við útskriftina hjá Háskólanum á Akureyri um síðustu helgi. Hasthika Lankathilaka starfsmaður á Grund og Maria Florinda Da Silva Abranja starfsmaður á hjúkrunardeildinni í Ási luku grunndiplómu í fagnámi fyrir starfandi sjúkraliða með sérhæfingu í öldrunar- og heimahjúkrun. Ragnhildur Rún Vilmundardóttir brautskráðist með BS gráðu í iðjuþjálfunarfræðum. Fanney Björg Karlsdóttir og Guðrún Lilja Jóhannsdóttir brautskráðust með viðbótardiplómu í ráðgjöf í málefnum fólks með heilabilun. Við óskum þeim hjartanlega til hamingju.

Blöðrur og fjör

Stundum eru nokkrar blöðrur og frauðplast allt sem þarf til að fá góða hreyfingu, gera daginn skemmtilegan og bregða á leik. 🎈 María sjúkraþjálfari hér í Mörk fór um húsið og bauð upp á hreyfingu dagsins með þessum hætti. Allir skemmtu sér konunglega.

Heimilisfólk sækir sumarblómin

Það ríkir alltaf skemmtilegt andrúmsloft þegar heimilisfólk í Ási sækir sumarblóm til að hafa hjá sér. 🌹 Það er úr nægu að velja, litrík og falleg blóm sem gleðja svo sannarlega. Það er svo notalegt að puða aðeins í mold og gefandi að fylgjast með blómunum vaxa og dafna

Lambið fékk ótal faðmlög frá heimilisfólkinu

Við fengum eftirminnilega heimsókn nýlega þegar lambið Kári kom í heimsókn í vinnuna með henni Ósk Reynisdóttur. Lambið býr á Hraðastöðum í Mosfellsdal en þar er lítill húsdýragarður.🐑 Lambið er svo sannarlega mannelskt og hefur ekkert á móti faðmlögum og knúsi og það fékk svo sannarlega nóg af því hjá heimilisfólkinu. Andlit ljómuðu og það er öruggt að margir eiga eftir að rifja upp lengi vel þessa dásamlegu heimsókn

Hátt á annað þúsund pönnukökur

Klukkan átta í morgun mættu þeir Ingvar Már yfirmatreiðslumeistari Grundarheimilanna og Benidikt bakari í eldhúsið í Mörk til að baka fyrir morgundaginn, 17. júní. Alls baka þeir á um tíu pönnukökupönnum um 1.700 pönnukökur sem heimilisfólk, starfsfólk og íbúar hjá Íbúðum 60+ fá að gæða sér á eftir matinn eða með kaffinu á morgun. Þeir búast við að klára baksturinn um hálfþrjú í dag

Gönguferð í sólinni

Í sumar er heimilisfólki í Mörk boðið í gönguferðir á miðvikudögum og sólin skein svo sannarlega nú í vikunni þegar komið var út í garð. Dásamleg samvera og Rebekka mætti með gítarinn sinn og það var sungið af innlifun.

Sprækar í sjúkraþjálfun

Það er alltaf nóg um að vera í sjúkraþjálfuninni á Grund. Hér eru það æfingar með þessum heiðurskonum. Góða helgi.

Tónleikar í Ási

Það var ánægjuleg stundin nú í vikunni þegar Þórdís Emilía og Jakob Grybos komu og glöddu okkur með dásamlegum tónleikum. Þórdís lék á fðlu og Jakob á píanó. Léku þau klassíska tónlist við mikinn fögnuð viðstaddra.