Á Grundarheimilum sköpum við samfélag sem stuðlar að vellíðan og lífsgæðum.
Markmið mannauðsstefnunnar er að hjá Grundaheimilunum starfi gott og hæft starfsfólk sem vinnur vel saman.
Lögð er áhersla á faglega stjórnun, góð og upplýsandi samskipti, ábyrgð starfsfólks á eigin hlutverki, samvinnu og samhyggð.
Gildi Grundarheimilanna eru þar einnig í forgrunni:
Vellíðan, Virðing, Vinátta
Hjá Grundaheimilunum starfar samheldinn og fjölbreyttur hópur starfsfólks sem býr að hæfni, reynslu og þekkingu. Hópur starfsfólks sem hefur það að markmiði að veita íbúum heimilanna framúrskarandi þjónustu, öryggi og umhyggju.
Staðið er fyrir námskeiðum og fyrirlestrum jafnframt sem fólk er hvatt til viðhalda sinni þekkingu, auka við hana og miðla henni meðal annara starfsmanna.
Leitað er eftir mati starfsfólks á hvernig er hægt að bæta vinnuumhverfi, gera vinnustaðinn betri og tryggja okkar íbúum góða umönnun. Starfsmannakannanir eru gerðar reglulega sem og opnir spjallfundir auk öryggisúttektar á hverri vinnustöð með starfsmanni, deildarstjóra og öryggistrúnaðarmanni.
Fagleg stjórnun og ábyrgð er þó alltaf í höndum stjórnenda ásamt ábyrgð á því að vinnuaðstæður og umhverfi sé öruggt og heilsusamlegt. Ábyrgð allra starfsmanna er þó sameiginleg með stjórnendum að vinna að góðum starfsanda, gagnkvæmri virðingu meðal starfsfólks, jákvæðum og uppbyggjandi samskiptum.
Stjórnendur eru aðgengilegir, hvetjandi, stuðla að frumkvæði og opnum og góðum samskiptum sem leiða til virkrar þátttöku starfsfólks.
Hverskyns einelti, áreitni og ofbeldi er ekki liðið á Grundarheimilunum. Tekið er ákveðið á slíkum málum í samræmi við EKKO stefnu og verklag henni tengt.
Stjórnendur og starfsfólk gæta að jafnrétti og mannvirðingu.
Allir starfsmenn eru fulltrúar Grundarheimilanna