Nemendur buðu upp á stólajóga

Í gær fengum við skemmtilega heimsókn upp á aðra hæð hér í Mörk. Fjórir nemendur úr Verslunarskóla Íslands komu til okkar en þar stendur yfir góðgerðarvika. ❤️ Ungmennin eru á fyrsta ári í Versló og buðu upp á stólajóga og spiluðu síðan OlsenOlsen. Frábær stund og allir ánægðir með þessa notalegu og skemmtilegu tilbreytingu. 🥰 Í dag eigum við von á öðrum hópi frá Versló sem ætlar að mæta í morgunstund á fjórðu hæð

Grundarkórinn æfir vikulega

Grundarkórinn hefur verið starfræktur í mörg ár en hann skipa heimilismenn, starfsfólk, aðstandendur og velunnarar heimilisins. Kórinn hittist vikulega á æfingum og kemur fram við hátíðleg tækifæri og heldur einnig tónleika tvisvar á ári. Kóræfingar eru komnar á fullt eftir sumarfrí en þær eru alla miðvikudaga. Kórstjóri er Kristín Waage.

Nemendur mættu með bakkelsi

Það er góðgerðarvika hjá Verslunarskóla Íslands þessa dagana og nemendur komu á Grund til að láta gott af sér leiða. 🥰 Þeir komu færandi hendi með bakkelsi, sungu og fóru í leiki með heimilisfólki og lífguðu svo sannarlega upp á hversdaginn hér hjá okkur á Litlu Grund. Takk kærlega fyrir skemmtilega heimsókn