12.06.2026
Í sumar er heimilisfólki í Mörk boðið í gönguferðir á miðvikudögum og sólin skein svo sannarlega nú í vikunni þegar komið var út í garð. Dásamleg samvera og Rebekka mætti með gítarinn sinn og það var sungið af innlifun.
12.06.2026
Það er alltaf nóg um að vera í sjúkraþjálfuninni á Grund. Hér eru það æfingar með þessum heiðurskonum.
Góða helgi.
12.06.2026
Það var ánægjuleg stundin nú í vikunni þegar Þórdís Emilía og Jakob Grybos komu og glöddu okkur með dásamlegum tónleikum.
Þórdís lék á fðlu og Jakob á píanó. Léku þau klassíska tónlist við mikinn fögnuð viðstaddra.
12.06.2026
Það voru gamlir og góðir sumarsmellir í bland við önnur lög sem ómuðu úr hátíðasal Grundar þegar Grundarkórinn hélt vortónleika sína nú í vikunni.
Kórinn er nú kominn í sumarfrí og í haust byrja vikulegar æfingar aftur. Þá eru eins og endranær aðstandendur hjartanlega velkomnir í kórinn sem og starfsfólk og velunnarar heimilisins.
12.06.2026
Heimiliskonan Steinunn Sveinsdóttir gerði sér lítið fyrir og prjónaði Íslandsbankapeysu fyrir dótturdóttur sína. Hún átti stundum í svolitlu strögli með munstrið en mætti galvösk í iðjuna og í sameiningu fundu snillingarnir þar útúr þessu með henni. Hún bætti svo um betur og prjónaði sokka og húfu í stíl.
Steinunn var eljusöm og frábært framtak hjá henni því að hún segir sjálf frá því að hún hafi á tímabili glatað færninni við að prjóna en neitað að gefast upp.🌞
Alltaf glöð og jákvæð hún Steinunn. Og hér er hún með dótturdóttur sinni Silvu á mynd sem er auðvitað alsæl með fallegu peysuna sína