104 árum fagnað á Grund

Árlega fögnum við afmæli heimilisins hér á Grund og í ár eru 104 ár síðan Grund var formlega vígð í litlu húsi við Sauðagerðistún, þann 29. október árið 1922. 🇮🇸
 
Afmælishátíðin hér á Grund tók tvo daga, hátíðasalurinn var klæddur í sparibúning og boðið upp á heitt súkkulaði og bakkelsi. 🎂
 
Forstjóri Grundarheimilanna, Karl Óttar Einarsson, flutti ávörp báða dagana, Grundarkórinn söng og leiddi einnig samsöng. Rúsínan í pylsuendanum var svo heimsókn Stefáns Helga Stefánssonar tenórs sem brá ser í líki Ragga Bjarna og svo Elvis.🥰