Guðrún Birna Gísladóttir, fv. forstjóri hjúkrunarheimilisins Grundar, lést 20. október, 82 ára að aldri.
Guðrún fæddist á Grund við Hringbraut 1. júlí 1944. Foreldrar hennar voru Gísli Sigurbjörnsson forstjóri Grundar og Helga Björnsdóttir.
Guðrún varð þriðji ættliðurinn til að stýra Grund, en afi hennar, sr. Sigurbjörn Ástvaldur Gíslason, var á meðal stofnenda heimilisins. Guðrún ólst upp á Grund með heimilisfólkinu og upplifði vöxt og viðgang starfseminnar.
Árið 1965 giftist Guðrún sr. Páli Þórðarsyni og áttu þau þrjá syni; Gísla Pál, f. 1966, Þórð Björn, f. 1967, og Halldór Gunnar, f. 1975. Þau bjuggu í Neskaupstað frá 1973 en snjóflóðið i bænum 1974 var þeim mikið áfall líkt og samfélaginu öllu. Þau fluttu til Njarðvíkur 1975 er Páll varð þar sóknarprestur. Páll lést 1978, langt um aldur fram. Eftirlifandi eiginmaður Guðrúnar er Júlíus G. Rafnsson, fv. framkvæmdastjóri á Grund, og sonur þeirra er Kjartan Örn, f. 1982.
Guðrún starfaði lengi við hlið föður síns á Grund. Hún sat í stjórn heimilisins frá 1979 og tók við starfi forstjóra við andlát föður síns í ársbyrjun 1994. Var hún fyrsta konan hér á landi til að gegna forstjórastarfi á hjúkrunarheimili. Undir hennar stjórn stækkaði starfsemin til muna; byggt var við Grund, Hjúkrunarheimilið Ás var vígt 1998, rekstur Markar hófst 2010 og reistar voru þjónustuíbúðir fyrir aldraða.
Guðrún lét af störfum á 75 ára afmælisdegi sínum, 1. júlí 2019, eftir 52 ára starf á Grund. Sat hún í stjórn heimilisins til dánardags, átti sinn síðasta stjórnarfund daginn fyrir andlátið.
Guðrún var sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu á Bessastöðum 17. júní 2023, fyrir umönnun og þjónustu við aldraða. Hún hlaut þakkarviðurkenningu Félags kvenna í atvinnurekstri árið 2009.