Það var svo sannarlega haldið upp á Bleika daginn í Ási í gær. Allt skreytt hátt og lágt af heimilisfólki og starfsfólki og Guðrún Lilja Jóhannsdóttir, Eyrún Samúelsdóttir og Hólmfríður Kristjánsdóttir prjónuðu og hekuðu slaufur og bönd handa þeim sem vildu bera og sýna með því stuðning.

En það var ekki nóg með að allt væri skreytt og fólk skartaði bleiku heldur voru líka bleikar kökur á boðstólum með kaffinu og nýbakaðar vöfflur með bleikum rjóma.
Dásamlegur dagur og allir svo glaðir bæði með tilbreytinguna og svo hinsvegar að fá að sýna þessu átaki Krabbameinsfélags Íslands og Bleiku slaufunnar stuðning