Fjör í hátíðasal Grundar

Grundarbandið mætti í hátíðasalinn í síðustu viku og lék að venju fyrir dansi. Heimilisfólk og starfsfólk skemmtu sér vel og það er rétt að minna á að aðstandendur eru líka alltaf hjartanlega velkomnir á viðburði eins og þessa. 🥰
Þetta er svo skemmtilegt og eflaust frábært að stíga dans með sínu fólki við dunandi harmonikkutóna Grundarbandsins. 🕺