Það eru tólf ár síðan Iceland Airwaves tónlistarhátíðin var fyrst sett á Grund, 5 nóvember árið 2014. Þá söng Júníus Meyvant fyrir fullum sal af fólki.
Nú tólf árum síðar var það Halla Tómasdóttir, forseti Íslands sem setti tónlistarhátíðina formlega hér á Grund.
Í opnunarávarpi sínu sagði Halla meðal annars að hún væri efins um að nokkur tónlistarhátíð hefjist með þeim hætti sem hér væri gert, þar sem
yngstu börnin til elstu borgara og fjöldi erlendra gesta koma saman þvert á kynslóðir og njóta tónlistar saman. "Ég held að tónlist hafi einstaka töfra og ég finn það í mínu starfi hvað tónlistaratburðir gera mikið fyrir mig í mínu starfi. Stundum er starfið strembið en svo fer maður á tónleika og tónlistin hefur einhverja einstaka töfra,“ sagði Halla.
Að venju var troðfullur hátíðasalurinn hér á Grund, leikskólabörn úr hverfinu mættu, heimilisfólk og gestir hátíðarinnar.
Eins og alltaf á hverju ári dásamleg stemning, í raun alveg einstök.