Heimastuðningsteymi Áss tók til starfa 1. september 2025 sem verkefni í aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar "Gott að eldast".
Heimastuðningsteymið samþættir alla þjónustu sem einstaklingar þurfa í heimahúsi. Heimahjúkrun, félagslegan heimastuðning, dagdvöl, heimsendan mat ofl. Með því að hafa alla þjónustu á einum stað næst heildrænni nálgun við skjólstæðingana heima, með betri yfirsýn og bættum lífsgæðum.
Til að sækja um aðkomu heimastuðningsteymis er sett inn umsókn inn á íbúagátt Hveragerðisbæjar eða skila útprentaðri umsókn á skrifstofu Áss. Eins er hægt að senda tölvupóst á kristjana@dvalaras.is og fá frekari upplýsingar.
Allar umsóknir fara fyrir móttöku og matsnefndarfundi sem haldnir eru tvisvar sinnum í viku. Þessa fundi sitja fulltrúar frá heimastuðningsteymi áss, Hveragerðisbæ og Heilbrigðisstofnun Suðurlands.