02.11.2026
Guðrún Birna Gísladóttir, fv. forstjóri hjúkrunarheimilisins Grundar, lést 20. október, 82 ára að aldri.
Guðrún fæddist á Grund við Hringbraut 1. júlí 1944. Foreldrar hennar voru Gísli Sigurbjörnsson forstjóri Grundar og Helga Björnsdóttir.
Guðrún varð þriðji ættliðurinn til að stýra Grund, en afi hennar, sr. Sigurbjörn Ástvaldur Gíslason, var á meðal stofnenda heimilisins. Guðrún ólst upp á Grund með heimilisfólkinu og upplifði vöxt og viðgang starfseminnar.
Árið 1965 giftist Guðrún sr. Páli Þórðarsyni og áttu þau þrjá syni; Gísla Pál, f. 1966, Þórð Björn, f. 1967, og Halldór Gunnar, f. 1975. Þau bjuggu í Neskaupstað frá 1973 en snjóflóðið i bænum 1974 var þeim mikið áfall líkt og samfélaginu öllu. Þau fluttu til Njarðvíkur 1975 er Páll varð þar sóknarprestur. Páll lést 1978, langt um aldur fram. Eftirlifandi eiginmaður Guðrúnar er Júlíus G. Rafnsson, fv. framkvæmdastjóri á Grund, og sonur þeirra er Kjartan Örn, f. 1982.
Guðrún starfaði lengi við hlið föður síns á Grund. Hún sat í stjórn heimilisins frá 1979 og tók við starfi forstjóra við andlát föður síns í ársbyrjun 1994. Var hún fyrsta konan hér á landi til að gegna forstjórastarfi á hjúkrunarheimili. Undir hennar stjórn stækkaði starfsemin til muna; byggt var við Grund, Hjúkrunarheimilið Ás var vígt 1998, rekstur Markar hófst 2010 og reistar voru þjónustuíbúðir fyrir aldraða.
Guðrún lét af störfum á 75 ára afmælisdegi sínum, 1. júlí 2019, eftir 52 ára starf á Grund. Sat hún í stjórn heimilisins til dánardags, átti sinn síðasta stjórnarfund daginn fyrir andlátið.
Guðrún var sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu á Bessastöðum 17. júní 2023, fyrir umönnun og þjónustu við aldraða. Hún hlaut þakkarviðurkenningu Félags kvenna í atvinnurekstri árið 2009.
21.10.2026
Það er eins og flestir vita líklega bleikur dagur í dag, vitundardagur á vegum Bleiku slaufunnar og Krabbameinsfélags Íslands. 🌸🌷
Á þriðju hæðinni í Mörk var ákveðið að minna rækilega á málstaðinn og allt skreytt hátt og lágt. Að auki var boðið upp á bleikar veitingar og svo klæddust flestir einhverju bleiku.
Frábær tilbreyting og allir sem vettlingi geta valdið tóku þátt í þessari skemmtilegu uppákomu.
08.10.2026
Í gær fengum við skemmtilega heimsókn upp á aðra hæð hér í Mörk. Fjórir nemendur úr Verslunarskóla Íslands komu til okkar en þar stendur yfir góðgerðarvika. ❤️
Ungmennin eru á fyrsta ári í Versló og buðu upp á stólajóga og spiluðu síðan OlsenOlsen.
Frábær stund og allir ánægðir með þessa notalegu og skemmtilegu tilbreytingu. 🥰
Í dag eigum við von á öðrum hópi frá Versló sem ætlar að mæta í morgunstund á fjórðu hæð
23.09.2026
Fyrir mörgum árum bjó tengdamóðir Kristjáns Sigurðssonar, Lára Þorsteinsdóttir, í Mörk. Þá mætti hann reglulega með gítarinn til að stytta henni og fólkinu á heimilinu stundir. Eftir að Lára dó hefur Kristján samt haldið uppteknum hætti og heimsækir nú reglulega heimilisfólkið og tekur gítarinn með sér.🎸
Kristján er einstakur og nær að hrífa alla með sér í söng og gleði. Margir tala um að þetta séu allra skemmtilegustu stundirnar þeirra.
Takk kæri Kristján fyrir að gefa þér tíma til að koma í heimsókn í öll þessi ár og gleðja okkur með nærveru þinni.
20.08.2026
Sápukúlur, andlitsmálning, blöðrur, söngur, ilmandi popp beint úr vél og aðrar glæsilegar veitingar var á meðal þess sem boðið var uppá þegar sumarhátíð Grundar var nýlega haldin.
Vel mætt og veðrið lék við okkur.
20.08.2026
Það var kátt á hjalla í Mörk í gær þegar sumarhátíðin var hjá okkur.
Tvíund hélt uppi stemmingunni, bornar voru fram frábærar veitingar frá eldhúsinu og svo vöktu poppvélin, andlitsmálarinn og svokallaður blaðrari verðskuldaða athygli.
27.07.2026
Fjölmargir lögðu leið sína á opið hús á afmælisdegi Áss í gær þegar gefinn var kostur á að skoða nýja hjúkrunarheimilið sem er að rísa.
Gestum var boðið upp á kaffi og kleinur og fengu leiðsögn um þetta glæsilega heimili sem stefnan er að opna í febrúar á næsta ári.
22.07.2026
Í tilefni af 80 ára afmæli Hveragerðisbæjar og 74 ára afmæli Áss
verður nýja hjúkrunarheimilið sem rís norðan Hverahlíðar opið
gestum sunnudaginn 26. júlí frá 14.00 – 17.00.
Boðið verður upp á kaffi og kleinur.
Allir velkomnir
Gísli Páll stjórnarformaður Grundarheimilanna
15.07.2026
Þau eittu svo sannarlega tilbreytingu hér í Mörk krakkar úr vinnuskóla Reykjavíkur sem komu til okkar og spiluðu fyrir heimilisfólk.
Það var þungbúið svo flestir horfðu út um gluggann á þessa hressu krakka en nokkrir fóru út.
Hópurinn fer víða og gleður gesti og gangandi með lúðrasveitarhljómum. Frábær heimsókn. Takk fyrir komuna.
23.06.2026
Við á Grundarheimilunum eru stolt að segja frá því að við áttum fimm fulltrúa við útskriftina hjá Háskólanum á Akureyri um síðustu helgi.
Hasthika Lankathilaka starfsmaður á Grund og Maria Florinda Da Silva Abranja starfsmaður á hjúkrunardeildinni í Ási luku grunndiplómu í fagnámi fyrir starfandi sjúkraliða með sérhæfingu í öldrunar- og heimahjúkrun.
Ragnhildur Rún Vilmundardóttir brautskráðist með BS gráðu í iðjuþjálfunarfræðum.
Fanney Björg Karlsdóttir og Guðrún Lilja Jóhannsdóttir brautskráðust með viðbótardiplómu í ráðgjöf í málefnum fólks með heilabilun.
Við óskum þeim hjartanlega til hamingju.