Fréttir

Sönghópurinn Tjaldur heimsækir Ás reglulega

Sönghópurinn Tjaldur kom hingað í Ás í síðustu viku. Það er alltaf tilhlökkunrefni þegar þessi notalegi sönghópur kemur í heimsókn. Ekki nóg með að hópurinn syngi létt og skemmtileg lög heldur nær hann líka að hrífa heimilisfólkið með og það er svo dásamlegt.

Handprjónaðar bleikar slaufur og bleikt bakkelsi

Það var svo sannarlega haldið upp á Bleika daginn í Ási í gær. Allt skreytt hátt og lágt af heimilisfólki og starfsfólki og Guðrún Lilja Jóhannsdóttir, Eyrún Samúelsdóttir og Hólmfríður Kristjánsdóttir prjónuðu og hekuðu slaufur og bönd handa þeim sem vildu bera og sýna með því stuðning. 🩷 En það var ekki nóg með að allt væri skreytt og fólk skartaði bleiku heldur voru líka bleikar kökur á boðstólum með kaffinu og nýbakaðar vöfflur með bleikum rjóma. Dásamlegur dagur og allir svo glaðir bæði með tilbreytinguna og svo hinsvegar að fá að sýna þessu átaki Krabbameinsfélags Íslands og Bleiku slaufunnar stuðning

Haustferð með heimilismönnum

Eden tenglar í Ási tóku að sér að skipuleggja haustferð fyrir heimilisfólk. Farið var á Lava safnið á Hvolsvelli þar sem gengið var um safnið með leiðsögn. Komið var við á kaffihúsinu Auðkúlu og þar var boðið upp á vöfflur og kaffisopa. Þetta var dásamleg ferð og allir sem nutu sín.🥰 Sigrún Sveinsdóttir var með myndavélina á lofti.

Þrjár heimiliskonur hekluðu 120 armbönd

Í tilefni af gulum degi fyrir skömmu tókum við okkur til í Ási og fengum starfsfólk og heimilisfólk í lið með okkur og við hekluðum og prjónuðum bönd. Markmiðið var að allir sem vildu gætu sýnt málstaðnum stuðning og borið armband. Þetta fór fram úr björtustu vonum og til dæmis hekluðu heimiliskonurnar Eyrún, Hólmfríður og Guðrún um 120 bönd. Allir starfsmenn í Ási báru bönd og vakti þetta mikla lukku

Kærleikurinn í Ási

Kærleikur, lífið og tilveran var umfjöllunarefnið þegar hún Dóra Sólrún Kristinsdóttir djákni kom og var með samverustund hér í Ási. Notaleg stund

Opið hús í Ási

Fjölmargir lögðu leið sína á opið hús á afmælisdegi Áss í gær þegar gefinn var kostur á að skoða nýja hjúkrunarheimilið sem er að rísa. Gestum var boðið upp á kaffi og kleinur og fengu leiðsögn um þetta glæsilega heimili sem stefnan er að opna í febrúar á næsta ári.

Opið hús sunnudaginn 26. júlí

Í tilefni af 80 ára afmæli Hveragerðisbæjar og 74 ára afmæli Áss verður nýja hjúkrunarheimilið sem rís norðan Hverahlíðar opið gestum sunnudaginn 26. júlí frá 14.00 – 17.00. Boðið verður upp á kaffi og kleinur. Allir velkomnir Gísli Páll stjórnarformaður Grundarheimilanna

Gott að vinna í Ási

Björk var sjúkraliði á hjúkrunarheimilinu í Ási og talar oft um hvað það hafi verið og sé gott að vinna þar. Nú kemur hún í Bæjarás í dagdvöl. Hún nýtur þess nú eins og þegar hún var í vinnunni að dekra við heimilisfólkið. Hér er hún að setja rúllur í Rúr

Sykurpúðasamlokur í sólinni

Í lok síðustu viku sást til fyrstu sólarglætunnar í langan tíma og því var fagnað hér í Ási. Við slógum upp pylsupartýi þar sem margir heimilismenn lögðu hönd á plóg við undirbúning og á meðan á veisluhöldum stóð. ☀️ Í eftirrétt var boðið upp á heiðarlega sykurpúða-samloku og kom í ljós að margir voru að smakka þessa klístruðu veislu í fyrsta skipti. Sumir fóru alla leið í sumargleðinni og hentu í garðútilegu. Dýrmætt og skemmtilegt uppbrot sem veitti þvílíka gleði

Áttum fimm fulltrúa við útskrift um síðustu helgi

Við á Grundarheimilunum eru stolt að segja frá því að við áttum fimm fulltrúa við útskriftina hjá Háskólanum á Akureyri um síðustu helgi. Hasthika Lankathilaka starfsmaður á Grund og Maria Florinda Da Silva Abranja starfsmaður á hjúkrunardeildinni í Ási luku grunndiplómu í fagnámi fyrir starfandi sjúkraliða með sérhæfingu í öldrunar- og heimahjúkrun. Ragnhildur Rún Vilmundardóttir brautskráðist með BS gráðu í iðjuþjálfunarfræðum. Fanney Björg Karlsdóttir og Guðrún Lilja Jóhannsdóttir brautskráðust með viðbótardiplómu í ráðgjöf í málefnum fólks með heilabilun. Við óskum þeim hjartanlega til hamingju.