26.11.2026
Ef þú átt aðstandanda á Grundarheimilunum og ert ekki með skráð netfang hjá okkur þá getur þú á næstu dögum átt von á símtali frá Sigríði Sigurðardóttur fræðslu- og gæðastjóra til að fá netfangið skráð.
Nánari upplýsingar um þessa rannsókn verða svo sendar til ykkar í tölvupósti og þátttaka er valkvæð.
25.11.2026
Þjónustukönnun Grundarheimilanna, einnig kölluð hlýleikakönnun, er nú opin heimilisfólki til og með 4. desember. Með könnuninni viljum við heyra hvernig heimilisfólk upplifir þjónustuna, hvað gengur vel og hvað mætti bæta.
Aðstandendur hafa fengið tölvupóst þar sem þeir eru beðnir um að aðstoða sína nánustu við að svara könnuninni ef heimilisfólk óskar eftir aðstoð.
Aðstandendur fá síðar sérstakan hlekk á könnun þar sem þeir geta gefið endurgjöf út frá eigin reynslu.
23.11.2026
Kórinn Vorboðar hélt tónleika í hátíðasalnum í síðustu viku. Kórinn hefur verið starfandi allt frá árinu 1989 og er skipaður fólki á
besta aldri úr Mosfellsbæ.
Það er gaman að segja frá því að kórinn heiðraði sérsatklega hjónin Andrés og Guðrúnu en þau búa hér á Grund núna og höfðu sungið lengi með kórnum. 🥰
Stjórnandi kórsins er Friðrik Vingir Stefánsson og formaður
Oddur Garðarsson
14.11.2026
Alla miðvikudaga klukkan frá 14:00 til 15:00 eru æfingar hjá Grundarkórnum í hátíðasal Grundar.
Kórinn skipa heimilismenn, starsfólk og einnig eru aðstandendur hjartanlega velkomnir sem og aðrir velunnarar.
Í gær voru það jólalögin sem ómuðu úr hátíðasalnum.
14.11.2026
Það var fremur kalt og hráslagalegt veður í gær og því var ákveðið að bjóða upp á nýbakaðar vöfflur í vinnustofunni í gær. 🧇☕️
Heimilisfólk kemur iðulega í vinnustofuna til að prjóna, mála, leysa krossgátur, perla eða bara til að spjalla og þiggja heita bakstra á axlir.
14.11.2026
Gísli Páll Pálsson björgunarmaður í Hjálparsveit skáta í Hveragerði kom við í Ási með neyðarkallinn. Karl Óttar Einarsson forstjóri tók við neyðarkallinum en Ás hefur til fjölda ára styrkt hjálparsveitina með því að kaupa neyðarkallinn
12.11.2026
Á þriðjudögum er heimilisfólki boðið í vaxmeðferð í vinnustofu iðjuþjálfunar í Mörk.
Þegar fólkið okkar hefur fengið vaxmeðferð á hendur, smá nudd jafnvel á lúna fingur og hitapoka á axlir fer heimilisfólkið að bjástra við verkefni sem heilla það.
Einhverjir kjósa að föndra fyrir jólin, aðrir reyna sig við orðarugl eða krossgátur og svo eru alltaf einhverjir sem kjósa að vinna með demantaperl.
12.11.2026
Það eru tólf ár síðan Iceland Airwaves tónlistarhátíðin var fyrst sett á Grund, 5 nóvember árið 2014. Þá söng Júníus Meyvant fyrir fullum sal af fólki.
Nú tólf árum síðar var það Halla Tómasdóttir, forseti Íslands sem setti tónlistarhátíðina formlega hér á Grund. Í opnunarávarpi sínu sagði Halla meðal annars að hún væri efins um að nokkur tónlistarhátíð hefjist með þeim hætti sem hér væri gert, þar sem
yngstu börnin til elstu borgara og fjöldi erlendra gesta koma saman þvert á kynslóðir og njóta tónlistar saman. "Ég held að tónlist hafi einstaka töfra og ég finn það í mínu starfi hvað tónlistaratburðir gera mikið fyrir mig í mínu starfi. Stundum er starfið strembið en svo fer maður á tónleika og tónlistin hefur einhverja einstaka töfra,“ sagði Halla.
Að venju var troðfullur hátíðasalurinn hér á Grund, leikskólabörn úr hverfinu mættu, heimilisfólk og gestir hátíðarinnar.
Eins og alltaf á hverju ári dásamleg stemning, í raun alveg einstök.
11.11.2026
Árlega koma krakkar úr Grunnskóla Hveragerðis til okkar hingað í Ás með vinakveðju sem þau hafa búið til í tilefni vinaviku grunnskólans.
Verkefnið er hluti af áherslu skólans um virðingu, vináttu og jákvæð samskipti. Unnið er með vinabekki þar sem nemendur úr mismunandi árgöngum starfa saman.
Börnin fara síðan ì öll fyrirtæki og hús og bera út kveðjurnar
02.11.2026
Guðrún Birna Gísladóttir, fv. forstjóri hjúkrunarheimilisins Grundar, lést 20. október, 82 ára að aldri.
Guðrún fæddist á Grund við Hringbraut 1. júlí 1944. Foreldrar hennar voru Gísli Sigurbjörnsson forstjóri Grundar og Helga Björnsdóttir.
Guðrún varð þriðji ættliðurinn til að stýra Grund, en afi hennar, sr. Sigurbjörn Ástvaldur Gíslason, var á meðal stofnenda heimilisins. Guðrún ólst upp á Grund með heimilisfólkinu og upplifði vöxt og viðgang starfseminnar.
Árið 1965 giftist Guðrún sr. Páli Þórðarsyni og áttu þau þrjá syni; Gísla Pál, f. 1966, Þórð Björn, f. 1967, og Halldór Gunnar, f. 1975. Þau bjuggu í Neskaupstað frá 1973 en snjóflóðið i bænum 1974 var þeim mikið áfall líkt og samfélaginu öllu. Þau fluttu til Njarðvíkur 1975 er Páll varð þar sóknarprestur. Páll lést 1978, langt um aldur fram. Eftirlifandi eiginmaður Guðrúnar er Júlíus G. Rafnsson, fv. framkvæmdastjóri á Grund, og sonur þeirra er Kjartan Örn, f. 1982.
Guðrún starfaði lengi við hlið föður síns á Grund. Hún sat í stjórn heimilisins frá 1979 og tók við starfi forstjóra við andlát föður síns í ársbyrjun 1994. Var hún fyrsta konan hér á landi til að gegna forstjórastarfi á hjúkrunarheimili. Undir hennar stjórn stækkaði starfsemin til muna; byggt var við Grund, Hjúkrunarheimilið Ás var vígt 1998, rekstur Markar hófst 2010 og reistar voru þjónustuíbúðir fyrir aldraða.
Guðrún lét af störfum á 75 ára afmælisdegi sínum, 1. júlí 2019, eftir 52 ára starf á Grund. Sat hún í stjórn heimilisins til dánardags, átti sinn síðasta stjórnarfund daginn fyrir andlátið.
Guðrún var sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu á Bessastöðum 17. júní 2023, fyrir umönnun og þjónustu við aldraða. Hún hlaut þakkarviðurkenningu Félags kvenna í atvinnurekstri árið 2009.