Fréttir

Á Grund er íslenska fjölskyldan mín

Á Grund vinnur frábært starfsfólk frá ýmsum þjóðlöndum. Ángel er frá Venesúela og hún hefur að undanförnu verið iðin við að skreyta veggina á Litlu og Minni Grund og virkjað heimilisfólkið með sér. „Mér finnst gaman að gleðja heimilisfólkið sem hefur gefið mér svo mikið. Ástúð, góðvild, bros og faðmlög er það sem mætir mér hér í vinnunni. Heimilisfólkið er duglegt að kenna mér íslensku og það má alveg segja að þetta er íslenska fjölskyldan mín, heimilisfólk og starfsfólk á Litlu og Minni Grund. Við erum frá ýmsum þjóðlöndum sem hér störfum og um daginn útbjó ég með aðstoð heimilisfólks veggspjald með þjóðfánum okkar allra.“ Ángel segist alltaf hafa haft gaman af því að skapa og hún er með hjálp heimilisfólks að búa til fiðrildi, blóm og allskonar skraut sem þau hengja upp á veggi. Í Venesúela skreytti hún gjarnan kennslustofurnar líka en hún er kennari að mennt. Eiginmaður hennar og sonur komu með henni hingað til lands í leit að betri framtíð. Sonur hennar Isaac stundar nú nám í Hagaskóla, spilar á gítar, ber út dagblöð og vinnur við garðyrkju í sumar. Hann spilar líka fótbolta og eiginmaðurinn Luis vinnur í fiskbúð í Hafnarfirði. Þau eru alsæl hér á landi og Ángel segist hamingjusöm að fá að vera nálægt frábæru fólk á Litlu og Minni Grund.

Lúðrasveit í heimsókn

Þau lífguðu aldeilis upp á hversdaginn hér á Grund krakkar úr vinnuskólanum sem komu til okkar á Hringbrautina og spiluðu fyrir heimilisfólk. Það blés svolítið svo flestir horfðu út um gluggann á þessa hressu krakka en nokkrir létu sig hafa það og fóru út. Hópurinn fer víða og gleður gesti og gangandi með lúðrasveitarhljómum. Frábær heimsókn. Takk fyrir komuna.

Áttum fimm fulltrúa við útskrift um síðustu helgi

Við á Grundarheimilunum eru stolt að segja frá því að við áttum fimm fulltrúa við útskriftina hjá Háskólanum á Akureyri um síðustu helgi. Hasthika Lankathilaka starfsmaður á Grund og Maria Florinda Da Silva Abranja starfsmaður á hjúkrunardeildinni í Ási luku grunndiplómu í fagnámi fyrir starfandi sjúkraliða með sérhæfingu í öldrunar- og heimahjúkrun. Ragnhildur Rún Vilmundardóttir brautskráðist með BS gráðu í iðjuþjálfunarfræðum. Fanney Björg Karlsdóttir og Guðrún Lilja Jóhannsdóttir brautskráðust með viðbótardiplómu í ráðgjöf í málefnum fólks með heilabilun. Við óskum þeim hjartanlega til hamingju.

Hátt á annað þúsund pönnukökur

Klukkan átta í morgun mættu þeir Ingvar Már yfirmatreiðslumeistari Grundarheimilanna og Benidikt bakari í eldhúsið í Mörk til að baka fyrir morgundaginn, 17. júní. Alls baka þeir á um tíu pönnukökupönnum um 1.700 pönnukökur sem heimilisfólk, starfsfólk og íbúar hjá Íbúðum 60+ fá að gæða sér á eftir matinn eða með kaffinu á morgun. Þeir búast við að klára baksturinn um hálfþrjú í dag

Sprækar í sjúkraþjálfun

Það er alltaf nóg um að vera í sjúkraþjálfuninni á Grund. Hér eru það æfingar með þessum heiðurskonum. Góða helgi.

Vortónleikar Grundarkórsins

Það voru gamlir og góðir sumarsmellir í bland við önnur lög sem ómuðu úr hátíðasal Grundar þegar Grundarkórinn hélt vortónleika sína nú í vikunni. Kórinn er nú kominn í sumarfrí og í haust byrja vikulegar æfingar aftur. Þá eru eins og endranær aðstandendur hjartanlega velkomnir í kórinn sem og starfsfólk og velunnarar heimilisins.

Tónlist í umönnun á Grundarheimilunum

"Það hefur sýnt sig að tónlist eykur vellíðan fólks og þegar við erum að tala um fólk með heilabilun eykurtónlist einnig virkni og minnkar depurð,“ segir Magnea Tómasdóttir,söngkona og tónlistarkennari í viðtali í Morgunblaðinu í morgun. Grundarheimilin hlutu styrk frá Oddfellowsystrum í Rebekku stúku nr. 1, Bergþóru til að gera átak í að upplýsa um hvernig hægt er að nota tónlist í umönnun með stórkostlegum árangri. Meðal þess sem Magnea gerir er að halda fyrirlestra fyrir starfsfólk Grundarheimilanna og aðstandendur um notkun tónlistar í daglegu lífi.

Fjör í hátíðasal

Mánaðarlega kemur Grundarbandið í heimsókn hingað á Grund og heldur uppi fjöri í hátíðasalnum. Þá er stiginn dans og mikið fjör. Þeir sem ekki eiga auðvelt með að dansa sitja bara í sætum sínum og dilla sér með.

Nýbakaðar vöfflur á Kaffi Grund

Síðasta miðvikudag í hverjum mánuði liðast þessi líka dásamlegi vöffluilmur um fyrstu hæð Grundar því þá eru til sölu á Kaffi Grund nýbakaðar vöfflur með kaffinu. Aðra daga er selt allskonar kruðerí með kaffinu og einnig smurt brauð og croissant. Við hvetjum aðstandendur til að koma með fólkinu sínu á kaffi húsið og núna þegar fer að hlýna þá er um að gera að sitja í garðinum og leyfa ungviðinu að leika sér úti. Að lokum minnum við á að það er opið á Kaffi Mörk frá 12:00 til 17:00 alla virka daga og frá 13:00 til 17:00 um helgar.

Peysufatadagurinn á Grund

Árlega gleðja nemendur Kvennaskólans okkur með heimsókn á peysufatadaginn og það ríkir ávallt mikil tilhlökkun að fá hópinn í heimsókn. Heimilisfólk raðar sér í gluggana þegar nemendur mæta syngjandi og dansandi í portið og sumir klæða sig vel og koma út og fylgjast með. Oftar en ekki eiga einhverjir nemendur ömmu, afa eða langömmu og langafa hér á heimilinu sem bíða spennt eftir að sjá afkomendur sína uppáklædda með þessum hætti. Við hér á Grund erum þakklát fyrir að Kvennaskólinn hafi heimsókn á heimilið á dagskrá á peysufatadaginn. Takk innilega fyrir okkur.