Heimiliskonan Steinunn Sveinsdóttir gerði sér lítið fyrir og prjónaði Íslandsbankapeysu fyrir dótturdóttur sína. Hún átti stundum í svolitlu strögli með munstrið en mætti galvösk í iðjuna og í sameiningu fundu snillingarnir þar útúr þessu með henni. Hún bætti svo um betur og prjónaði sokka og húfu í stíl.
Steinunn var eljusöm og frábært framtak hjá henni því að hún segir sjálf frá því að hún hafi á tímabili glatað færninni við að prjóna en neitað að gefast upp.

Alltaf glöð og jákvæð hún Steinunn. Og hér er hún með dótturdóttur sinni Silvu á mynd sem er auðvitað alsæl með fallegu peysuna sína