Klukkan átta í morgun mættu þeir Ingvar Már yfirmatreiðslumeistari Grundarheimilanna og Benidikt bakari í eldhúsið í Mörk til að baka fyrir morgundaginn, 17. júní.
Alls baka þeir á um tíu pönnukökupönnum um 1.700 pönnukökur sem heimilisfólk, starfsfólk og íbúar hjá Íbúðum 60+ fá að gæða sér á eftir matinn eða með kaffinu á morgun.
Þeir búast við að klára baksturinn um hálfþrjú í dag