Lambið fékk ótal faðmlög frá heimilisfólkinu
17.06.2026
Við fengum eftirminnilega heimsókn nýlega þegar lambið Kári kom í heimsókn í vinnuna með henni Ósk Reynisdóttur. Lambið býr á Hraðastöðum í Mosfellsdal en þar er lítill húsdýragarður.

Lambið er svo sannarlega mannelskt og hefur ekkert á móti faðmlögum og knúsi og það fékk svo sannarlega nóg af því hjá heimilisfólkinu.

Andlit ljómuðu og það er öruggt að margir eiga eftir að rifja upp lengi vel þessa dásamlegu heimsókn.