12.06.2026
Í sumar er heimilisfólki í Mörk boðið í gönguferðir á miðvikudögum og sólin skein svo sannarlega nú í vikunni þegar komið var út í garð. Dásamleg samvera og Rebekka mætti með gítarinn sinn og það var sungið af innlifun.
12.06.2026
Það er alltaf nóg um að vera í sjúkraþjálfuninni á Grund. Hér eru það æfingar með þessum heiðurskonum.
Góða helgi.
12.06.2026
Það var ánægjuleg stundin nú í vikunni þegar Þórdís Emilía og Jakob Grybos komu og glöddu okkur með dásamlegum tónleikum.
Þórdís lék á fðlu og Jakob á píanó. Léku þau klassíska tónlist við mikinn fögnuð viðstaddra.
12.06.2026
Það voru gamlir og góðir sumarsmellir í bland við önnur lög sem ómuðu úr hátíðasal Grundar þegar Grundarkórinn hélt vortónleika sína nú í vikunni.
Kórinn er nú kominn í sumarfrí og í haust byrja vikulegar æfingar aftur. Þá eru eins og endranær aðstandendur hjartanlega velkomnir í kórinn sem og starfsfólk og velunnarar heimilisins.
12.06.2026
Heimiliskonan Steinunn Sveinsdóttir gerði sér lítið fyrir og prjónaði Íslandsbankapeysu fyrir dótturdóttur sína. Hún átti stundum í svolitlu strögli með munstrið en mætti galvösk í iðjuna og í sameiningu fundu snillingarnir þar útúr þessu með henni. Hún bætti svo um betur og prjónaði sokka og húfu í stíl.
Steinunn var eljusöm og frábært framtak hjá henni því að hún segir sjálf frá því að hún hafi á tímabili glatað færninni við að prjóna en neitað að gefast upp.🌞
Alltaf glöð og jákvæð hún Steinunn. Og hér er hún með dótturdóttur sinni Silvu á mynd sem er auðvitað alsæl með fallegu peysuna sína
19.05.2026
"Það hefur sýnt sig að tónlist eykur vellíðan fólks og þegar við erum að tala um fólk með heilabilun eykurtónlist einnig virkni og minnkar
depurð,“ segir Magnea Tómasdóttir,söngkona og tónlistarkennari í viðtali í Morgunblaðinu í morgun.
Grundarheimilin hlutu styrk frá Oddfellowsystrum í Rebekku stúku nr. 1, Bergþóru til að gera átak í að upplýsa um hvernig hægt er að nota tónlist í umönnun með stórkostlegum árangri.
Meðal þess sem Magnea gerir er að halda fyrirlestra fyrir starfsfólk Grundarheimilanna og aðstandendur um notkun tónlistar í daglegu lífi.
06.05.2026
Mánaðarlega kemur Grundarbandið í heimsókn hingað á Grund og heldur uppi fjöri í hátíðasalnum. Þá er stiginn dans og mikið fjör. Þeir sem ekki eiga auðvelt með að dansa sitja bara í sætum sínum og dilla sér með.
01.05.2026
Síðasta miðvikudag í hverjum mánuði liðast þessi líka dásamlegi vöffluilmur um fyrstu hæð Grundar því þá eru til sölu á Kaffi Grund nýbakaðar vöfflur með kaffinu.
Aðra daga er selt allskonar kruðerí með kaffinu og einnig smurt brauð og croissant.
Við hvetjum aðstandendur til að koma með fólkinu sínu á kaffi húsið og núna þegar fer að hlýna þá er um að gera að sitja í garðinum og leyfa ungviðinu að leika sér úti.
Að lokum minnum við á að það er opið á Kaffi Mörk frá 12:00 til 17:00 alla virka daga og frá 13:00 til 17:00 um helgar.
30.04.2026
Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir heimsótti Ás í gær ásamt eiginmanni sínum, Birni Skúlasyni. Tilefnið var 80 ára afmæli Hveragerðisbæjar. 🇮🇸
Stjórnarformaður Grundarheimilanna, Gísli Páll Pálsson ásamt forstjóra Karli Óttari Einarssyni, tóku á móti forsetahjónunum og Birna Sif Atladóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar í Ási flutti stutt ávarp.
Forsetinn lýsti yfir ánægju með heimsóknina og sagði það bera vott um gott samfélag þar sem hlúð væri að börnum og öldruðum.
Heimilisfólkið var spennt fyrir komu forsetahjónanna sem gáfu sér góðan tíma til að heilsa upp á bæði þá sem búa í Ási og eru í dagdvöl. Að lokum var afmælissöngurinn tekinn fyrir afmælisbörn dagsins.
21.04.2026
Við byrjuðum með mánudagsgöngurnar á ný í gær. Fólk hafði á orði að þetta væri eins og Lóan, sannkallaður vorboði þegar starfsfólkið í iðjuþjálfun blési í göngulúðra.
Sigrún flutti ljóð um virðingu eftir Kristján Hreinsson við mikla ánægju viðstaddra.
Göngugarpar í neðri byggð virtu fyrir sér framkvæmdirnar við nýja hjúkrunarheimilið úr fjarlægð meðan þeir í efri byggð stilltu sér upp og reyndu að leiðbeina iðnaðarmönnunum