Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir heimsótti Ás í gær ásamt eiginmanni sínum, Birni Skúlasyni. Tilefnið var 80 ára afmæli Hveragerðisbæjar.

Stjórnarformaður Grundarheimilanna, Gísli Páll Pálsson ásamt forstjóra Karli Óttari Einarssyni, tóku á móti forsetahjónunum og Birna Sif Atladóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar í Ási flutti stutt ávarp.
Forsetinn lýsti yfir ánægju með heimsóknina og sagði það bera vott um gott samfélag þar sem hlúð væri að börnum og öldruðum.
Heimilisfólkið var spennt fyrir komu forsetahjónanna sem gáfu sér góðan tíma til að heilsa upp á bæði þá sem búa í Ási og eru í dagdvöl. Að lokum var afmælissöngurinn tekinn fyrir afmælisbörn dagsins.