Opið hús í vinnustofunni

Eftir hádegi á mánudögum og miðvikudögum og alla föstudaga koma heimilismenn niður á fyrstu hæð í Mörk og mæta í opið hús vinnustofunnar. 
Þá er spjallað, sumir prjóna, mála, fletta blöðum eða fást við eitthvað annað sem veitir þeim gleði. Notalegar stundir og allir velkomnir.