Síðasta miðvikudag í hverjum mánuði liðast þessi líka dásamlegi vöffluilmur um fyrstu hæð Grundar því þá eru til sölu á Kaffi Grund nýbakaðar vöfflur með kaffinu.
Aðra daga er selt allskonar kruðerí með kaffinu og einnig smurt brauð og croissant.
Við hvetjum aðstandendur til að koma með fólkinu sínu á kaffi húsið og núna þegar fer að hlýna þá er um að gera að sitja í garðinum og leyfa ungviðinu að leika sér úti.
Að lokum minnum við á að það er opið á Kaffi Mörk frá 12:00 til 17:00 alla virka daga og frá 13:00 til 17:00 um helgar.