22.10.2026
Það var svo sannarlega haldið upp á Bleika daginn í Ási í gær. Allt skreytt hátt og lágt af heimilisfólki og starfsfólki og Guðrún Lilja Jóhannsdóttir, Eyrún Samúelsdóttir og Hólmfríður Kristjánsdóttir prjónuðu og hekuðu slaufur og bönd handa þeim sem vildu bera og sýna með því stuðning. 🩷
En það var ekki nóg með að allt væri skreytt og fólk skartaði bleiku heldur voru líka bleikar kökur á boðstólum með kaffinu og nýbakaðar vöfflur með bleikum rjóma.
Dásamlegur dagur og allir svo glaðir bæði með tilbreytinguna og svo hinsvegar að fá að sýna þessu átaki Krabbameinsfélags Íslands og Bleiku slaufunnar stuðning
21.10.2026
Eden tenglar í Ási tóku að sér að skipuleggja haustferð fyrir heimilisfólk. Farið var á Lava safnið á Hvolsvelli þar sem gengið var um safnið með leiðsögn. Komið var við á kaffihúsinu Auðkúlu og þar var boðið upp á vöfflur og kaffisopa.
Þetta var dásamleg ferð og allir sem nutu sín.🥰
Sigrún Sveinsdóttir var með myndavélina á lofti.
21.10.2026
Það er eins og flestir vita líklega bleikur dagur í dag, vitundardagur á vegum Bleiku slaufunnar og Krabbameinsfélags Íslands. 🌸🌷
Á þriðju hæðinni í Mörk var ákveðið að minna rækilega á málstaðinn og allt skreytt hátt og lágt. Að auki var boðið upp á bleikar veitingar og svo klæddust flestir einhverju bleiku.
Frábær tilbreyting og allir sem vettlingi geta valdið tóku þátt í þessari skemmtilegu uppákomu.
08.10.2026
Í gær fengum við skemmtilega heimsókn upp á aðra hæð hér í Mörk. Fjórir nemendur úr Verslunarskóla Íslands komu til okkar en þar stendur yfir góðgerðarvika. ❤️
Ungmennin eru á fyrsta ári í Versló og buðu upp á stólajóga og spiluðu síðan OlsenOlsen.
Frábær stund og allir ánægðir með þessa notalegu og skemmtilegu tilbreytingu. 🥰
Í dag eigum við von á öðrum hópi frá Versló sem ætlar að mæta í morgunstund á fjórðu hæð
08.10.2026
Grundarkórinn hefur verið starfræktur í mörg ár en hann skipa heimilismenn, starfsfólk, aðstandendur og velunnarar heimilisins. Kórinn hittist vikulega á æfingum og kemur fram við hátíðleg tækifæri og heldur einnig tónleika tvisvar á ári.
Kóræfingar eru komnar á fullt eftir sumarfrí en þær eru alla miðvikudaga. Kórstjóri er Kristín Waage.
08.10.2026
Það er góðgerðarvika hjá Verslunarskóla Íslands þessa dagana og nemendur komu á Grund til að láta gott af sér leiða. 🥰
Þeir komu færandi hendi með bakkelsi, sungu og fóru í leiki með heimilisfólki og lífguðu svo sannarlega upp á hversdaginn hér hjá okkur á Litlu Grund.
Takk kærlega fyrir skemmtilega heimsókn
23.09.2026
Heimilisfólki á Grund fannst ekki leiðinlegt að fá þessa fornbíla í heimsókn fyrir skömmu. Verið var að taka upp sjónvarpsþætti fyrir utan heimilið og þetta voru fararskjótarnir sem notaðir voru í þáttunum.
Eflaust hafa þeir vakið upp skemmtilegar minningar hjá einhverjum.
23.09.2026
Í tilefni af gulum degi fyrir skömmu tókum við okkur til í Ási og fengum starfsfólk og heimilisfólk í lið með okkur og við hekluðum og prjónuðum bönd.
Markmiðið var að allir sem vildu gætu sýnt málstaðnum stuðning og borið armband.
Þetta fór fram úr björtustu vonum og til dæmis hekluðu heimiliskonurnar Eyrún, Hólmfríður og Guðrún um 120 bönd. Allir starfsmenn í Ási báru bönd og vakti þetta mikla lukku
23.09.2026
Fyrir mörgum árum bjó tengdamóðir Kristjáns Sigurðssonar, Lára Þorsteinsdóttir, í Mörk. Þá mætti hann reglulega með gítarinn til að stytta henni og fólkinu á heimilinu stundir. Eftir að Lára dó hefur Kristján samt haldið uppteknum hætti og heimsækir nú reglulega heimilisfólkið og tekur gítarinn með sér.🎸
Kristján er einstakur og nær að hrífa alla með sér í söng og gleði. Margir tala um að þetta séu allra skemmtilegustu stundirnar þeirra.
Takk kæri Kristján fyrir að gefa þér tíma til að koma í heimsókn í öll þessi ár og gleðja okkur með nærveru þinni.
16.09.2026
Það var margt um manninn í morgunstund í dag, fullur salur af fólki og eftirvænting í lofti.
Gesturinn í morgunstund að þessu sinni var hinn ástsæli Bubbi Morthens. Hann söng í um klukkustund og fór um víðan völl í lagavali.
Með honum voru þeir Halldór Gunnar Pálsson Fjallabróðir og Baldvin Hlynsson á píanó.
Frábærir tónleikar og þakka ykkur innilega fyrir komuna Bubbi, Halldór Gunnar og Baldvin.