25.08.2026
Kærleikur, lífið og tilveran var umfjöllunarefnið þegar hún Dóra Sólrún Kristinsdóttir djákni kom og var með samverustund hér í Ási. Notaleg stund
25.08.2026
Á Grund mættust tveir snillingar í morgun þegar söngstund var á Litlu og Minni Grund. Reynir Jónasson og Jón Ólafur Þorsteinsson harmonikkuleikarar tóku lagið og hrifu aðra með sér.
20.08.2026
Sápukúlur, andlitsmálning, blöðrur, söngur, ilmandi popp beint úr vél og aðrar glæsilegar veitingar var á meðal þess sem boðið var uppá þegar sumarhátíð Grundar var nýlega haldin.
Vel mætt og veðrið lék við okkur.
20.08.2026
Það var kátt á hjalla í Mörk í gær þegar sumarhátíðin var hjá okkur.
Tvíund hélt uppi stemmingunni, bornar voru fram frábærar veitingar frá eldhúsinu og svo vöktu poppvélin, andlitsmálarinn og svokallaður blaðrari verðskuldaða athygli.
17.08.2026
Það er skjólgott utandyra á Kaffi Grund ef fólk vill sitja í blíðunni þessa dagana og fá sér hressingu. Kaffihúsð er ekki bara opið fyrir heimilisfólk og aðstandendur heldur eru Vesturbæingar og aðrir velunnarar hjartanlega velkominir.
Opið er inn á kaffihúsið frá Hringbraut alla daga vikunnar frá 13:00 til 17:00.
27.07.2026
Fjölmargir lögðu leið sína á opið hús á afmælisdegi Áss í gær þegar gefinn var kostur á að skoða nýja hjúkrunarheimilið sem er að rísa.
Gestum var boðið upp á kaffi og kleinur og fengu leiðsögn um þetta glæsilega heimili sem stefnan er að opna í febrúar á næsta ári.
22.07.2026
Í tilefni af 80 ára afmæli Hveragerðisbæjar og 74 ára afmæli Áss
verður nýja hjúkrunarheimilið sem rís norðan Hverahlíðar opið
gestum sunnudaginn 26. júlí frá 14.00 – 17.00.
Boðið verður upp á kaffi og kleinur.
Allir velkomnir
Gísli Páll stjórnarformaður Grundarheimilanna
22.07.2026
Björk var sjúkraliði á hjúkrunarheimilinu í Ási og talar oft um hvað það hafi verið og sé gott að vinna þar. Nú kemur hún í Bæjarás í dagdvöl. Hún nýtur þess nú eins og þegar hún var í vinnunni að dekra við heimilisfólkið. Hér er hún að setja rúllur í Rúr
22.07.2026
Á Grund vinnur frábært starfsfólk frá ýmsum þjóðlöndum. Ángel er frá Venesúela og hún hefur að undanförnu verið iðin við að skreyta veggina á Litlu og Minni Grund og virkjað heimilisfólkið með sér.
„Mér finnst gaman að gleðja heimilisfólkið sem hefur gefið mér svo mikið. Ástúð, góðvild, bros og faðmlög er það sem mætir mér hér í vinnunni. Heimilisfólkið er duglegt að kenna mér íslensku og það má alveg segja að þetta er íslenska fjölskyldan mín, heimilisfólk og starfsfólk á Litlu og Minni Grund. Við erum frá ýmsum þjóðlöndum sem hér störfum og um daginn útbjó ég með aðstoð heimilisfólks veggspjald með þjóðfánum okkar allra.“
Ángel segist alltaf hafa haft gaman af því að skapa og hún er með hjálp heimilisfólks að búa til fiðrildi, blóm og allskonar skraut sem þau hengja upp á veggi. Í Venesúela skreytti hún gjarnan kennslustofurnar líka en hún er kennari að mennt.
Eiginmaður hennar og sonur komu með henni hingað til lands í leit að betri framtíð. Sonur hennar Isaac stundar nú nám í Hagaskóla, spilar á gítar, ber út dagblöð og vinnur við garðyrkju í sumar. Hann spilar líka fótbolta og eiginmaðurinn Luis vinnur í fiskbúð í Hafnarfirði.
Þau eru alsæl hér á landi og Ángel segist hamingjusöm að fá að vera nálægt frábæru fólk á Litlu og Minni Grund.
21.07.2026
Í lok síðustu viku sást til fyrstu sólarglætunnar í langan tíma og því var fagnað hér í Ási. Við slógum upp pylsupartýi þar sem margir heimilismenn lögðu hönd á plóg við undirbúning og á meðan á veisluhöldum stóð. ☀️
Í eftirrétt var boðið upp á heiðarlega sykurpúða-samloku og kom í ljós að margir voru að smakka þessa klístruðu veislu í fyrsta skipti.
Sumir fóru alla leið í sumargleðinni og hentu í garðútilegu. Dýrmætt og skemmtilegt uppbrot sem veitti þvílíka gleði