Furðuverur tóku á móti syngjandi börnum

Öskudagurinn er ávallt tekinn með trompi í Ási og mikil stemning. Og allir hjálpast að við undirbúninginn. Þaulvön heimiliskona aðstoðaði til dæmis Guðrúnu Lilju við að gera hárið fínt. Börnin i bænum komu við og sungu og hittu á ferð sinni um heimilið allskonar furðuverur sem tóku vel á mót börnunum.