Salsatónlistin ómar á Grund

Tvisvar í mánuði ómar salsatónlist á Grund. Það er þegar gleðigjafinn og sjálfboðaliðinn Zulay Viciet mætir í hús.
Hún er dansþerapisti frá Venezuela sem dansar við dunandi salsatónlist og fær okkur öll til að dansa með hvort sem við erum sitjandi eða getum staðið í fæturna.
Takk kæra Zulay fyrir að koma til okkar á Grund með birtu, yl og umfram allt gleðina.