19.11.2021
Undanfarnar vikur höfum við á Grundarheimilunum verið að taka upp Workplace sem er samskiptaforrit tengt Facebook en stendur algjörlega sjálfstætt. Helsta hlutverk WP er að með forritinu fæst sameiginlegur vettvangur allra starfsmanna Grundarheimilanna.. Þar að auki er hægt að vera með sérstakar síður fyrir hverja og eina einingu, deild, heimili og svo framvegis þar sem hægt er að koma margvíslegum upplýsingum á framfæri, til dæmis varðandi aukavaktir, óskum um skipti á vöktum og svo framvegis. Þá er WP einnig tilvalið til að skipuleggja og tilkynna skemmtanir og viðburði og ná þannig að þjappa hópum saman.
Forritið virkar eins og Facebook sem flestir þekkja og kemur í staðinn fyrir þær Facebook síður sem deildirnar og heimilin hafa notast við hingað til og í stað hefðbundinna tölvupóstsamskipta. Undirritaður forstjóri mun þó væntanlega áfram notast fyrst og fremst við tölvupóstinn varðandi dagleg samskipti og afgreiðslu ýmissa mála. Þess ber þó að geta að ég gat, reyndar með góðri aðstoð Írisar mannauðsstjóra, sett mynd af mér inn á prófílinn minn á WP, geri aðrir betur 😊
WP einfaldar aðgengi að ýmsum hagnýtum upplýsingum, til dæmis nýliðafræðslunni, starfsmannahandbókum og öðrum verklagsreglum. Það allt saman má finna undir Knowledge library.
Innleiðing hefur gengið misjafnlega undanfarnar vikur en ég er viss um að notkun forritsins verður vel þess virði. Vonandi verður starfsfólk tengdara og lifir sig meira sem hluta af heild. Fyrsti viðburðurinn á WP verður næsta laugardag. Auðvitað viljum við helst hittast í raunheimum en á meðan ástandið er eins og það er í samfélaginu, þá er þessi vettvangur tilvalinn til að eiga saman skemmtilega kvöldstund. Notum WP og njótum laugardagskvöldsins saman.
Kveðja og góða helgi,
Gísli Páll, forstjóri Grundarheimilanna
16.11.2021
Hrafnkell Kárason sem bjó á Miðbæ á 2-hæð, lést þann 29. október síðastliðinn. Ekkja hans, Dröfn Jónsdóttir og dóttir hans Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir, komu nýlega og gáfu heimilinu þennan yndislega gleðigjafa sem malar og mjálmar. Það er búið að gefa honum nafnið Keli og við hlökkum mikið til að njóta samveru hans. Við færum mæðgunum hjartans þakkir.
12.11.2021
Einu sinni á ári býður prjónahönnuðurinn Stephen West upp á leynisamprjón þar sem prjónað er sjal sem hann hannar. Fanney Björg Karlsdóttir iðjuþjálfi í Ási er ein þeirra sem tóku þátt núna fjórum öðrum starfsmönnum í Ási.
12.11.2021
Enn og aftur berast neyðarköll frá Landspítalanum. Nú síðast frá forstjóranum sjálfum sem haft var eftir rétt nýlega orðrétt á alnetinu: „Þetta stendur og fellur með að það þarf að fjölga hjúkrunarrýmum“. Eðlilega, covid 19 hefur tekið flugið á ný og allt of mörg rými á þjóðarsjúkrahúsinu eru setin, eða legin, af einstaklingum sem eru flestir búnir að fá sína greiningu og eftir atvikum lækningu, og þurfa að komast í varanlega dvöl á hjúkrunarheimili. Þessi neyðarköll stjórnenda LSH hafa endurómað þá rúma þrjá áratugi sem ég hef sinnt stjórnunarstörfum í öldrunarþjónustu hér á landi. Og sýnist að köllin komi til með að endurtaka sig reglulega um ókomna tíð, í það minnsta á meðan ég verð í mínu starfi. Því miður virðist ekki skipta máli hvort covid faraldur geysi, ég fann á alnetinu margar tilvitnanir mörg ár aftur í tímann á sömu nótum þegar ég leitaði eftir nýjustu ummælum forstjóra LSH.
Það er alveg með ólíkindum að þessi staða skuli koma upp með svo reglubundnum hætti. Það er ekki eins og að tölfræðin, aldurssamsetning þjóðarinnar eða aðrar viðeigandi upplýsingar liggi ekki fyrir. Þessir einstaklingar fæddust á fyrri hluta síðustu aldar og hafa verið til í 70 – 90 ár. Og það er frekar einföld stærðfræði að reikna út hversu margir einstaklingar á þeim aldri þurfi á dvöl á hjúkrunarheimili að halda. En einhvern veginn tekst ráðamönnum landsins að klúðra þeim útreikningi, eða það sem verra er, að þeir reikni þetta jafnvel ekkert út.
Reglulega er blásið í lúðra og tilkynnt með pomp og prakt að nú skuli þessi mál öll sömul leyst með aukinni heimahjúkrun og heimaþjónustu. Og jafn oft hafa þessi fögru fyrirheit beðið skipsbrot, í það minnsta steytt á skeri. Vissulega hefur orðið aukning í heimahjúkrun og heimaþjónustu sem ber að þakka fyrir og er hið besta mál, en bara ekki nægilega mikið til þess að minnka sívaxandi eftirspurn eftir hjúkrunarrýmum, þannig að þau dugi til.
Vonandi sér ný ríkisstjórn ljósið og gerir bragarbót á uppbyggingu, umgjörð og rekstrarumhverfi hjúkrunarheimila landsins. Þeir sem eru komnir á efri ár, eru hrumir og bíða á LSH eftir plássi á hjúkrunarheimili, eiga það skilið. Þeir sem bíða eftir nauðsynlegum aðgerðum á LSH og komast ekki í þær vegna framangreindra sem bíða í rúmunum þar, eiga það skilið. Við eigum það öll skilið.
Kveðja og góða helgi,
Gísli Páll, forstjóri Grundarheimilanna
09.11.2021
Fyrir skömmu var haldið árlegt starfsmannakvöld í Mörk þar sem veittar voru starfsaldursviðurkenningar og fyrrum starsmenn heiðraðir. Það er einnig venja að bjóða starfsmönnum að borða saman kvöldverð og spila síðan að lokum um glæsilega bingóvinninga.
09.11.2021
Eins og venja er á starfsmannakvöldum Grundarheimilanna eru fyrrum starfsmenn heiðraðir. Þessi mynd var tekin af fyrrverandi starfsfólki Grundar þegar Gísli Páll Pálsson þakkaði þeim vel unnin störf og færði þeim blómvönd sem þakklætisvott.
09.11.2021
Nýlega var haldið starfsmannakvöld í Ási og eins og venja er veittar þar bæði starfsaldursviðurkenningar og þeir starfsmenn sem hættir eru störfum heiðraðir. Það er áralöng hefð fyrir hvorutveggja og því að hittast að kvöldi til borða saman góðan mat og spila svo í lokin bingó þar sem veglegir vinningar eru í boði.
05.11.2021
Í dag vour veitt verðlaun fyrir hrekkjavökuskreytingar í Ási.
05.11.2021
Nú er búið að veita verðlaun fyrir flottustu skreytingarnar á hrekkjavöku hér á Grund.
05.11.2021
Veiran minnir á sig þessa dagana og viljum við því skerpa aðeins á reglum hjá okkur.
Allir gestir eru beðnir um:
1. Að spritta sig við komu í hús
2. að bera grímu á leið inn og útúr húsi
3. að dvelja eingöngu á herbergi heimilismanns á meðan á heimsókn stendur
4. að staldra ekki við á göngum og tala við starfsfólk heldur hringja í okkur
5. að dvelja ekki í sameiginlegum rýmum
Við biðjum gesti að koma ekki í heimsókn ef þeir:
Eru í sóttkví eða smitgát.
Eru í einangrun (einnig meðan beðið er niðurstöðu úr sýnatöku).
Hafa verið í einangrun vegna COVID-19 smits og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift.
Eru með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang).
Hafa dvalið erlendis undanfarna daga og eru ekki komnir með neikvæða niðurstöðu úr skimun eftir komuna til landsins. Þetta á við um bólusetta gesti, óbólusettir þurfa að gangast undir tvöfalda skimun og sóttkví einsog reglur á landamærum segja til um.
Með kærri þökk fyrir skilningsríkt og ánægjulegt samstarf😊
Mússa