Árlega gleðja nemendur Kvennaskólans okkur með heimsókn á peysufatadaginn og það ríkir ávallt mikil tilhlökkun að fá hópinn í heimsókn.
Heimilisfólk raðar sér í gluggana þegar nemendur mæta syngjandi og dansandi í portið og sumir klæða sig vel og koma út og fylgjast með. Oftar en ekki eiga einhverjir nemendur ömmu, afa eða langömmu og langafa hér á heimilinu sem bíða spennt eftir að sjá afkomendur sína uppáklædda með þessum hætti.
Við hér á Grund erum þakklát fyrir að Kvennaskólinn hafi heimsókn á heimilið á dagskrá á peysufatadaginn. Takk innilega fyrir okkur.