Lúðrasveit í heimsókn

Þau lífguðu aldeilis upp á hversdaginn hér á Grund krakkar úr vinnuskólanum sem komu til okkar á Hringbrautina og spiluðu fyrir heimilisfólk. Það blés svolítið svo flestir horfðu út um gluggann á þessa hressu krakka en nokkrir létu sig hafa það og fóru út.
Hópurinn fer víða og gleður gesti og gangandi með lúðrasveitarhljómum. Frábær heimsókn. Takk fyrir komuna.