Fjólublár bekkur og alzheimer

Í vikunni var von á fulltrúum Alheimersamtakanna í Ás þar sem fyrirhugað var að bjóða upp á fræðslu fyrir starfsfólk um heilabilun.
Af þessu tilefni var ákveðið að leita á náðir herramanna í trésmiðjunni hér hjá okkur og þeir beðnir um að gefa gömlum bekk nýtt líf.
Bekkurinn var málaður fjólublár en það er litur Alzheimer sjúkdómsins og annarra heilabilunarsjúkdóma. Alzheimersamtökin hafa unnið að vitundarvakningu um Alzheimer og er átakið Munum leiðina einn liður í henni. Það felst í því að koma upp fjólubláum bekkjum í sveitarfélögum víða um land.
Nú er fjólublái bekkurinn kominn fyrir framan hjúkrunarheimilið og nýtur sín þar vel.
Það var vel mætt á fræðsluna og starfsfólk áhugasamt.