Færðu samfélaginu í Mörk rausnarlega peningagjöf

Gísli Páll Pálsson, stjórnarformaður Grundarheimilanna, er hér að taka við rausnarlegri peningagjöf …
Gísli Páll Pálsson, stjórnarformaður Grundarheimilanna, er hér að taka við rausnarlegri peningagjöf frá forsvarsmönnum félagsins, Birni Bjarnasyni og Viðari H. Eiríkssyni.
Aflinn, félag qi gong iðkenda færði samfélaginu  í Mörk peningagjöf að upphæð ein milljón króna. Félagið hefur um árabil boðið upp á qi gong æfingar í Kaffi Mörk sem félagsmenn hafa nýtt sér sem og nokkrir íbúar hjá Íbúðum 60+.
Vonandi verður æfingafyrirkomulagið með svipuðum hætti um ókomin ár.
 
Fjármunirnir verða nýttir á einhvern hátt sem kemur íbúum íbúðanna og heimilismönnum hjúkrunarheimilisins sem best.
Er Aflanum innilega þakkað fyrir þessa rausnarlegu gjöf.