Í lok síðustu viku sást til fyrstu sólarglætunnar í langan tíma og því var fagnað hér í Ási. Við slógum upp pylsupartýi þar sem margir heimilismenn lögðu hönd á plóg við undirbúning og á meðan á veisluhöldum stóð.

Í eftirrétt var boðið upp á heiðarlega sykurpúða-samloku og kom í ljós að margir voru að smakka þessa klístruðu veislu í fyrsta skipti.
Sumir fóru alla leið í sumargleðinni og hentu í garðútilegu. Dýrmætt og skemmtilegt uppbrot sem veitti þvílíka gleði