Það er ekki amalegt á Grund því í húsinu dvelja um þessar mundir þrír afburða góðir harmonikkuleikarar.

Þetta eru þeir Pétur Bjarnason, Reynir Jónasson og Jón Ólafur Þorsteinsson. Það skortir ekki glensinn og gamanið hjá þessum lífsglöðu köppum og þeir eru meira en til í að taka í nikkuna þegar svo ber undir.