Gáfu Grund tvær loftdýnur

Hjónin Kristín Jóna Grétarsdóttir og Baldvin Bjarnason reka Títus ehf. Þau gáfu Grund nýlega tvær loftdýnur í minningu Sólveigar Jónsdóttur, móður Kristínar, sem bjó á Grund síðustu fjögur æviárin. Sólveig hafði unnið í eldhúsinu á Grund þegar hún var ung og hætti þegar hún eignaðist Kristínu.
Við þökkum hjartanlega fyrir þessa hugulsömu gjöf sem mun koma sér ákaflega vel hér á Grund.🥰
Á myndinni eru frá Grund Oxana, Sigrún, Svanur, Thuy og Elísabet og Kristín eigandi Títus.