Fóstbræður með sína árlegu tónleika á Grund
12.05.2025
Karlakórinn Fóstbræður hefur svo áratugum skiptir komið árlega í heimsókn á Grund og haldið tónleika fyrir heimilismenn. Um áttatíu kjólfataklæddir herramenn mættu síðasta laugardag í hátíðasalinn með kórstjóranum sínum Árna Harðaundirtók í öllu húsinu.

Ótrúlega magnað að fá þennan einstæða kór í heimsókn ár eftir ár sem hefur það eitt að markmiði að gleðja heimilisfólkið okkar.

Við erum full þakklætis og getum ekki beðið eftir að fá ykkur aftur í heimsókn. Takk fyrir einstaka tónleika og takk fyrir að gefa ykkur ár eftir ár tíma til að gleðja okkur.