Þjónustukönnun Grundarheimilanna, einnig kölluð hlýleikakönnun, er nú opin heimilisfólki til og með 4. desember. Með könnuninni viljum við heyra hvernig heimilisfólk upplifir þjónustuna, hvað gengur vel og hvað mætti bæta.
Aðstandendur hafa fengið tölvupóst þar sem þeir eru beðnir um að aðstoða sína nánustu við að svara könnuninni ef heimilisfólk óskar eftir aðstoð. Aðstandendur fá síðar sérstakan hlekk á könnun þar sem þeir geta gefið endurgjöf út frá eigin reynslu.