Loki heillaði alla uppúr skónum
Mörk
04.06.2025
Sumir gestir sem koma í Mörk eru sérlega skemmtilegir og ljúfir. Þannig var það einmitt í gær þegar heimalingurinn Loki frá Hraðastöðum í Mosfellsdal kom í heimsókn.

Hann fékk mikið klapp og marga kossa enda Loki einstaklega skemmtilegur, mjúkur og sætur. Það sem gerði þó útslagið er að hann var sko alveg til í knús.