Heimilið fagnaði 103 ára afmæli sínu í gær, 29. október og því er fagnað þessa dagana hér á Grund. Samhliða afmælinu hefur svo áratugum skiptir verið haldið svokallað foreldrakaffi.
Hefðin á á bakvið það á sér langa sögu. Grund var stofnuð með almennum samskotum sumarið 1922 og í byrjun september það ár var Grund keypt sem var steinhús við Kaplaskjólsveg. Húsið varð fljótt alltof lítið því þörfin á húsnæði fyrir aldraða var brýn. Framtíðarsýn stjórnar Grundar var að ráðast í byggingu stærra heimilis.
Sveinn Jónsson kaupmaður í Reykjavík, oft nefndur Sveinn í Völundi, kom á fund stjórnar Grundar þann 10. desember árið 1924 og tilkynnti að hann og systkini hans vildu gefa þúsund krónur í húsbyggingarsjóð heimilisins til minningar um foreldra þeirra Jón Helgason og Guðrúnu Sveinsdóttur frá Steinum undir Eyjafjöllum. Eina skilyrðið sem fylgdi gjöfinni var að jafnan skyldi á heimilinu haldið upp á brúðkaupsdag þeirra hjóna 26. október ár hvert.
Þaðan kemur semsagt nafnið foreldrakaffi og þessi skemmtilega hefð sem við enn í dag höldum á lofti.
Hér á árum áður komu systkinin í heimsókn þennan dag meðan þeim entist líf og heilsa og gáfu þá um leið heimilinu meira en afmælisveislan kostaði hverju sinni.
Afmælisgestir gæddu sér á heitu súkkulaði og ljúffengar veitingar voru á borð bornar nú sem endranær. Að þessu sinni söng Grundarkórinn í hátíðasalnum og Stefán Helgi Stefánsson söng nokkur lög. Karl Óttar Einarsson forstjóri flutti stutta tölu og Guðrún B Gísladóttir, fyrrverandi forstjóri, rakti sögu heimilisins og sagði frá tilurð hefðarinnar með foreldrakaffið.