VÍS gaf Grund tónleika í afmælisgjöf

Hljómsveitin GÓSS mætti á Grund í gær og hélt hátíðatónleika, tók jólalög í bland við önnur falleg lög. Tónleikarnir eru gjöf frá VÍS til Grundar í tilefni 100 ára afmælis heimilisins sem var þann 29. október síðastliðinn. Hljómsveitina skipa Guðmundur Óskar Guðmundsson, Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðundsson. Færum VÍS hjartans þakkir fyrir yndislega tónleika.