Hvíldarinnlögn

Velkomin í skammtímadvöl á Grund

Markmið skammtímadvalar er tvíþætt, annars vegar hressingardvöl fyrir einstaklinginn og hins vegar að létta tímabundið umönnun af fjölskyldu hans. Lengd dvalarinnar er ákvörðuð af Færni- og heilsumatsnefnd. Dvalargestum í skammtímadvöl er velkomið að nýta sér alla almenna þjónustu Grundar og taka þátt í félagsstarfi og viðburðum sem í boði eru fyrir heimilisfólk.

Sigrún Faulk er deildarstjóri hvíldarinnlagna. Sími hjá henni er 5306188/6116.

Mikilvægt er að láta vita af læknisrannsóknum og aðgerðum sem fyrirhugaðar eru á meðan að á skammtímadvöl stendur eða í kringum það tímabil. Þessum tímum þarf að breyta því annars lendir kostnaður á Grund sem sjúkratryggingar myndu annars greiða.

Í skammtímadvöl þarf að hafa með sér:

Lyfjarúllu eða lyf og lyfjakort. Við biðjum um að fá öll lyf meðferðis.

Hjálpartæki (einnota) sem viðkomandi notar heima.

Innifatnað, næg föt til skiptanna, náttföt og nærföt, inniskó, hlýja peysu.

Útiföt og skó.

Létt teppi.

Snyrtivörur s.s. sjampó, tannkrem, rakvél, raksápu, og rakakrem.

Útvarp og afþreyingarefni, s.s. bækur, handavinnu að vild

Mikilvægt er að aðstandendur láti heimahjúkrun/dagþjálfun vita af skammtímadvölinni og hvenær henni líkur.

Aðstandendur annast þvott á persónulegum fatnaði og eru óhrein föt sett í poka inn í fataskáp. Vinsamlegast merkið fatnað og hjálpartæki með upphafstöfum, til dæmis með fatatússpenna. Sæng, koddar, rúmföt og handklæði eru til staðar á Grund.

Vinsamlegast hafa með sér öll lyf. Þetta á einnig við um augndropa og innúðalyf, krem, lyfjaplástra og sprautur sem viðkomandi notar. Muna eftir lyfjakorti.

Vinsamlegast komið með göngugrindur, hjólastóla og önnur hjálpartæki sem þið eruð vön að nota.

Síma-og tölvumál eru alfarið á ábyrgð aðstandenda, þráðlausa netið Grund-gestanet, ekkert lykilorð.

Snyrtistofa 530-6219 og hárgreiðslustofa 530-6206 eru reknar af verktökum, tímapantanir fara í gegnum þær stofur.

Ekki er gert ráð fyrir að fólk fái sjúkraþjálfun á meðan á dvölinni stendur en opið er í tækjasal á ákveðnum tímum og stólaleikfimi er í boði fyrir þá sem vilja.

Peningar og verðmæti eru á eigin ábyrgð og við biðjum um að fólk taki ekki með sér verðmæti. Húsinu er læst frá kl.20:00 til kl.8:00 og er þá hægt að hringja dyrabjöllu í anddyri hjúkrunarheimilisins eða hafa samband í síma 530-6161.

Af öryggisástæðum og af tillitssemi við starfsfólk eru dvalargestir vinsamlegast beðnir um að tilkynna starfsfólki um fjarveru af heimilinu.