Kæru heimilismenn, aðstandendur og starfsfólk

Við ætlum að rýmka heimsóknartilmæli frá og með 1 febrúar.

  1. Hver heimilismaður getur fengið einn til tvo heimsóknargesti á dag, þarf ekki að vera sá sami alla vikuna.
  2. Heimsóknartími er kl.13-18 eða eftir nánara samkomulagi.
  3. Grímuskylda er í heimsóknum og gestir eru beðnir um að dvelja ekki í sameiginlegum rýmum.
  4. Ef heimilismenn fara af heimilinu hvetjum við þá til að gæta ítrustu sóttvarna, vera með grímu og sótthreinsa hendur.
  5. Við biðjum heimsóknargesti um að koma ekki í heimsókn ef þeir:
  • Eru í sóttkví eða smitgát
  • Eru í einangrun vegna Covid-19
  • Eru með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang).
  • ·• Hafa dvalið erlendis undanfarna daga og eru ekki komnir með neikvæða niðurstöðu úr skimun eftir komuna til landsins. Þetta á við um bólusetta gesti, óbólusettir þurfa að gangast undir tvöfalda skimun og sóttkví eins og reglur á landamærum segja til um.

Viðbragðsteymi Grundarheimilanna