    <language>is</language>
Pistlar | Grundarheimilin
Grindavík
      <description><![CDATA[Það hafa auðvitað ekki farið framhjá neinum hremmingarnar sem að dunið hafa á Grindvíkingum síðustu vikuna. Í jafn umfangsmikilli starfsemi og við störfum í eru tengsl til Grindavíkur úr ólíkum áttum. Ég sendi öllu samstarfsfólki, heimilisfólki og aðstandendum, með teningar til Grindavíkur mína bestu strauma.
 Einnig vil ég upplýsa að eins og komið hefur fram var leitað til okkar á Grundarheimilunum með að taka á móti hluta hópsins sem að þurfti að rýma hjúkrunarheimilið í Grindavík, Víðihlíð. síðastliðinn föstudag. Okkur var ljúft og skylt að bregðast við og útbúin var lítil hjúkrunardeild þar sem að okkar nýju íbúar dvelja nú í góðu yfirlæti. 
Auðvitað eru aðstæður þannig að ekki er mikið prívat rými þar sem að allir gista saman í einum sal en flestir bera sig samt vel miðað við aðstæður. Það var gott að taka á móti hópnum  og vita af þeim öruggum hjá okkur þar til önnur og betri aðstaða býðst þeim. 
Ég þakka sérstaklega öllum þeim starfsmönnum sem að hafa komið að því að setja upp slíka deild sem og að manna hana, en við höfum fengið aðstoð nokkurra starfsmanna úr Mörk við verkefnið. Við erum tilbúin í Hveragerði að skoða hvort að við gætum komið af stað svipuðu fyrirkomulagi til styttri tíma ef á þarf að halda síðar og yfirvöld eru upplýst um þann möguleika. 
Við hjálpumst öll að sem samfélag við þetta allt saman, það er ljóst af viðbrögðum úr öllu samfélaginu.
Kveðja og góða helgi,
Karl Óttar Einarsson
Forstjóri Grundarheimilanna]]></description>
Persónumiðuð þjónusta
      <description><![CDATA[Á Grundarheimilunum er stefnan að aðlaga þjónustu að hverjum og einum. Markmiðið er að taka tillit til getu hvers og eins og styðja hann þar sem upp á vantar. Of oft gleymum við okkur og tökum fram fyrir hendur heimilismannsins afþví við erum að flýta okkur. Hraðinn er oft mikill og við gefum okkur ekki tíma.
Ég hef áður fjallað um virðingu og að hafa hlutverk sem skiptir miklu máli. Hvernig myndum við vilja hafa hlutina ef við værum í þeirri stöðu að þurfa svona persónulega þjónustu? Leiðarljósið í okkar vinnu er Eden hugmyndafræðin. Tvö heimila okkar hafa í töluverðan tíma starfað eftir þessari hugmyndafræði, Ás og Mörk og fengið viðurkennda vottun þar að lútandi. Á Grund hefur lengi verið starfað í þessum anda og leiðarljósin höfð til hliðsjónar.
Nýlega var sú ákvörðun tekin að fá vottun fyrir Grund. Engar stórvægilegar breytingar þarf að gera í starfseminni. Við höldum bara áfram að gera það sem að við höfum verið að gera þar, þ.e. að veita okkar heimilisfólki alúð og umhyggju, með það í huga hvað við sjálf myndum kjósa ef við værum í þessum sporum. Til að uppfylla formkröfur fyrir vottun er nauðsynlegt að stór hluti starfsmanna og stjórnenda fari á sérstök Eden námskeið, en þau verða haldin eftir áramót. Starfsmenn Markar og Áss sem að ekki hafa farið á slík námskeið gefst einnig kostur á að fara á námskeiðin á þeim tíma. Eden námskeiðin eru ekki aðeins fyrir starfsfólk í umönnun heldur eru allir starfsmenn sem að vinna í umhverfi heimilismanna hvattir til að fara á námskeið, hvort sem þeir sinna heimilismönnum beint eða óbeint.
Lykillinn að því að geta veitt þessa persónumiðuðu þjónustu er að starfsfólk hafi tök á að kynnast heimilisfólkinu. Oft þegar fólk flytur til okkar hefur það misst færni í að tjá sig og segja frá sjálft hvað skipti þann einstakling máli, hvaðan hann kemur og hvað veitir honum ánægju. Lífssagan kemur þar sterk inn þar sem sagt er í myndum og texta frá þeim einstaklingi sem að býr hjá okkur.
Lífssöguna má útfæra á mismunandi máta en á facebook síðum heimilanna má sjá nýlega frétt þar sem nokkrir stjórnenda Grundarheimilanna komu saman og bjuggu til sína lífssögu á mjög stuttum tíma. Þetta var skemmtilegt, að útbúa eigin lífssögu með það í huga að kynna hvað skiptir mann máli. Lífssögurnar voru eins ólíkar og þær voru margar.
Ég vil því hvetja alla aðstandendur til að kynna sér lífssöguna en hún getur verið í allskonar formi. Við komum til með að bjóða aðstandendum og heimilisfólki á næstunni upp á samverustundir þar sem hægt verður að gera lífssöguna en einnig er hægt að fá frekari upplýsingar hjá deildarstjórum heimilanna.
Persónumiðuð þjónusta, með Eden hugmyndafræðina að leiðarljósi er ákvörðun. Eden hugmyndafræði er ekki trúarbrögð eða bókstafur sem verður í einu og öllu að fylgja. Svo lengi sem grunnur Eden stefnunar er ríkjandi í menningunni og við minnum okkur á gildin í daglegum aðstæðum þá erum við á góðri leið. Öll okkar heimili hafa þetta Eden „hjarta“ , en við þurfum alltaf að vera á tánum og meta hvort við séum á réttri leið.
Við höldum áfram okkar vinnu með þetta í huga og öll okkar heimili verða komin með formlega Eden vottun í vor.
Kveðja og góða helgi
Karl Óttar Einarsson
Forstjóri Grundarheimilanna
p.s. fyrir þá sem að vilja kynna sér Eden hugmyndafræðina betur er bent á heimasíðu Eden Ísland hér fyrir neðan.
https://edenalticeland.org/]]></description>
Sjúkraþjálfun á Grundarheimilunum
      <description><![CDATA[Á Grundarheimilunum erum við með starfandi sjúkraþjálfara og íþróttafræðinga. Þær Guðrún Geststdóttir og María Guðnadóttir eru sjúkraþjálfara starfandi annars vegar á Grund og hinsvegar í Mörk. Í nokkurn tíma núna hefur okkur vantað sjúkraþjálfara í Ási en það stendur heldur betur til bóta því um mánaðarmótin er væntanleg til starfa Christina Finke. Býð ég hana velkomna til starfa og hlakka til að sjá líf færast í starfsaðstöðu sjúkraþjálfunar í Ási eftir nokkurt hlé. Guðrún og María segja hér að neðan frá starfsemi sjúkraþjálfunar á Grund og í Mörk.
Markmið sjúkraþjálfunar er að viðhalda og/eða auka virkni, hreyfifærni og göngugetu heimilismanna og stuðla þannig að aukinni sjálfsbjargargetu og vellíðan, bæði andlegri og líkamlegri.  Einnig að finna leiðir til varnar byltum, kreppumyndun og myndun þrýstingssára. Sjúkraþjálfari og íþróttafræðingar vinna saman að þjálfun heimilisfólks Grundarheimilanna.  
Heimilisfólki býðst að mæta í þjálfun 2-3x í viku eða eftir samkomulagi, ýmist í æfingasal eða á heimili þess.   Sjúkraþjálfari metur alla íbúa með tilliti til líkamlegrar færni og setur upp einstaklingsmiðaða æfingaáætlun í samráði við íþróttafræðinga og íbúann sjálfan.  Áherslur í þjálfun eru á styrkjandi og liðkandi æfingar, göngu- og jafnvægisæfingar, auk úthaldsaukandi æfinga, allt eftir þörfum og áhuga hvers og eins.  Sjúkraþjálfari veitir verkjameðferð eftir þörfum í þverfaglegri samvinnu við aðrar heilbrigðisstéttir, sinnir endurhæfingu eftir slys og veikindi, metur þörf fyrir og útvegar spelkur, hjólastóla og göngugrindur og er tengiliður við stoðtækjafyrirtækin varðandi viðhald og viðgerðir á þeim. Að auki fræðir sjúkraþjálfari starfsmenn og leiðbeinir um góðar vinnustellingar til að forðast álagsmeiðsli. 
Íþróttafræðingar stýra sitjandi hóptímum 1-2x í viku á hverri deild þar sem áherslan er fyrst og fremst á styrkjandi og liðkandi æfingar 
Kveðja og góða helgi,
Karl Óttar Einarsson
Forstjóri Grundarheimilanna
Kvennaverkfall
      <description><![CDATA[Á þriðjudag í næstu viku, 24. október er boðað kvennaverkfall þar sem að konur og kvár eru hvött til að leggja niður störf þann dag. Grundarheimilin eru stór vinnustaður þar sem að konur starfa í miklum meirihluta. Það er ekki hægt annað en styðja við og sýna því skilning að við þurfum að ná lengra í jafnréttisátt, þá hvað okkar geira varðar að ná fram réttlátari launum fyrir okkar störf til samræmis við jafnverðmæt hefðbundin karlastörf. Að vinna á hjúkrunarheimili er erfið vinna og reynir mikið á það frábæra fólk sem að þar starfar bæði líkamlega og ekki síður andlega, óháð kyni. Mældur launamunur kynjana á Grundarheimilunum er nánast enginn og mælingar sýna til skiptis að launamunur sé konum og körlum í vil, en munurinn er það lítill að hann telst ekki marktækur. Launasetning á okkar heimilum byggist að lang mestu leiti á taxtalaunum skv. gildandi kjarasamningum hverju sinni. Vandamálið er því ekki innanhús hjá okkur heldur er verðmætamat starfanna í samfélaginu ekki réttlátt. Kjarasamningar þeir sem að við störfum eftir fylgja kjarasamningum ríkisins við sömu stéttir, enda fáum við fjármögnun á fjárlögum á grundvelli kostnaðarmats kjarasamninga ríkisins. Við myndum gjarnan vilja sjá hækkanir á þessum launum sem að endurspeglar raunverulegt verðmæti starfanna fyrir samfélagið.
Mikilvægi starfanna hjá okkur er okkur öllum augljós. Einmitt þess vegna er ekki hægt að leggja niður störf allra kvenna og kvára í heilan dag á hjúkrunarheimili, það er óumdeilt og aðstandendur átaksins sýna því skilning. Á okkar heimilum stöndum við öll saman vaktina til klukkan 13 nk. þriðjudag og sýnum samstöðu með þeim sem að geta ekki lagt niður störf allan daginn án þess að stefna öryggi okkar heimilisfólks í hættu. Frá klukkan 13 förum við niður í skilgreinda öryggismönnun á hjúkrunardeildum til þess að gefa sem flestum tækifæri til að taka þátt í skipulagðri dagskrá dagsins. Kvöld- og næturvaktir verða fullmannaðar enda er þar um að ræða öryggismönnun. Reikna má með þjónustuskerðingu að einhverju leiti að þessum sökum en reiknað er með að það náist að tryggja öryggi með lágmarksmannskap.
Við öll á Grundarheimilunum styðjum baráttuna og hvetjum stjórnvöld til þess að tryggja það að nauðsynlegar kjarabætur náist fram sem að endurspeglar verðmæti starfanna.
Kveðja og góða helgi
Karl Óttar Einarsson
Forstjóri Grundarheimilanna]]></description>
Hvað er sóun?
      <description><![CDATA[Eitt af því sem að við þurfum stöðugt að vera með í huga á heimilunum okkar er sóun. Manneskjan virðist eiga það sameiginlegt nánast hvar sem er í heiminum að ganga illa um og ekki vera sérlega nýtin. Öll þessi sóun kostar fjármuni sem að gaman væri að nýta í að gera eitthvað skemmtilegt. Við þekkjum öll þetta orð, sóun, en hugsum kannski minna um hvað það nákvæmlega er.
Að hafa skrúfað frá öllum ofnum og opna glugga er sóun. Að hafa kveikt ljós í björtu er sóun. Við getum líka sóað tíma. Tíma einhvers getur verið betur varið í önnur verk og verkefni en hann er akkúrat að sinna. Við getum líka sóað tíma með því að vera föst í ákveðnu verklagi sem að væri hægt að eindfalda. Þetta eru dæmi um sóun sem að við sjáum ekki endilega lenda í ruslinu. Úrgangur og sorp er svo önnur tegund sóunar.
Magn sorps frá heimilunum okkar er um 3 kíló fyrir hvern heimilismann á dag, alla daga ársins. Það eru tæplega 400 þúsund kíló á ári sem að samsvarar um það bil 350 stykkjum af Toyota Aygo bílum, næstum því einn á dag.
Því miður þá er það þannig að sorpið sem að kemur úr okkar starfsemi er að miklu leyti óhjákvæmlilegt vegna eðlis starfseminnar. Við þurfum þó að skoða ýmislegt sem að endar í ruslinu.
Við hendum t.d. of miklum mat á Grundarheimilunum sem er eitthvað sem að við þurfum að skoða og ég kalla eftir aðstoð samstarfsfólksins míns við að finna hvar við getum gert betur þar.
Sérfræðingarnir í dags daglegum störfum innan heimilanna sjá þetta lang best. Sýnum samfélagslega ábyrgð og tökum þátt, ég held að það gæti bara verið skemmtilegt líka ef að við fáum einhverjar góðar hugmyndir.
Kveðja og góða helgi
Karl Óttar Einarsson
Forstjóri Grundarheimilanna]]></description>
Að vera í sambandi
      <description><![CDATA[Það skiptir máli að vera í góðu sambandi og við höfum heyrt að aðstandendur almennt kalla eftir upplýsingagjöf um viðburði og annað sem í boði er fyrir heimilisfólk.
Við viljum endilega hvetja aðstandendur til að taka þátt í viðburðum stórum og smáum, það er velkomið að líta við í opin hús í iðjuþjálfun með sínu fólki, stólaleikfimi eða hvað sem er, það er bara skemmtilegt að taka þátt í formlegum og óformlegum viðburðum, samveran gefur alltaf mikið.
Til þess að við getum miðlað þessum upplýsingum þurfum við að vera með upplýsingar um aðstandendur og upplýsingarnar þurfa að vera réttar.
Við hvetjum alla aðstandendur til þess að skrá inn upplýsingar um sig á hlekknum hér fyrir neðan. Við hvetjum líka þá sem að eru núna skráðir til þess að fylla út upplýsingar um sig, og mögulega þannig uppfæra gamlar upplýsingar.
Vinsamlegast deilið þessum hlekk innan fjölskyldu þannig að fleiri geti skráð sig. Þeir sem að eru skráðir með þessum hætti fá þó ekki sjálfkrafa upplýsingar um heilsufar og viðkvæmar upplýsingar. Slíkt er alltaf metið í hverju tilfelli fyrir sig. Að hafa þessar upplýsingar skráðar hjálpar okkur líka að þekkja betur þá einstaklinga sem að við erum að aðstoða.
Við viljum halda góðu sambandi og hvetjum aðstandendur til að hafa samband ef að eitthvað er, stórt eða smátt.
Skráning upplýsinga hér: https://forms.office.com/e/Jjgc7VQk8b
Kveðja og góða helgi,
Karl Óttar Einarsson
forstjóri Grundarheimilanna]]></description>
Samskipti
      <description><![CDATA[Í flóknu umhverfi reynir oft á samskiptin og samskiptahæfnina. Það eru allskonar tilfinningar í spilinu þegar að kemur að umönnun ástvina okkar og ljóst að við getum ýmist verið sátt eða ósátt með margt sem að þar fer fram. Eitt er alveg ljóst að lang flestir þeirra sem að vinna þessi störf, gera það eftir sinni allra bestu getu og leggja sig margir fram um að gera þetta eins og þeir sjálfir myndu kjósa. Mikið heyri ég af samverustundum og uppbroti sem að einstaka starfsmenn eða hópur starfsmanna tekur sig saman um að gera og engar starfslýsingar komast yfir að lýsa. Ég verð alltaf ákaflega stoltur af samstarfsfólki mínu þegar að ég heyri slíkar sögur. Tökum okkur saman og verum dugleg að hrósa og þakka fyrir dagleg störf þessa frábæra fólks sem að starfar of oft í vanþakklátum störfum.
Þegar að hlutirnir eru hins vegar, að okkar mati, ekki eins og þeir eiga  að vera er rétt að beina þeim ábendingum til stjórnenda því að okkar er ábyrgðin. Eru upplýsingar nógu aðgengilegar? Eru þær nógu skýrar? Vita starfsmenn hvers er ætlast? Er skipulagið að virka? Þegar að eitthvað af þessu er að klikka þá þarf að skoða þessa hluti og það er í höndum okkar stjórnenda. Því miður gerist það stundum að við fáum fregnir af því að almennir starfsmenn fái yfir sig skammir og öskur að þeirra mati og það er ekki undir neinum kringumstæðum ásættanlegt. Við sýnum því fullan skilning að þetta er allt saman mjög flókið og allskonar tilfinningar í spilinu. Upplifun er líka ólík milli aðila og getur verið að sá sem að er talinn vera að öskra á einhvern upplifi það ekki þannig. Ég vil því endilega hvetja alla sem að hafa einhverjar umkvartanir að koma með þær endilega til deildarstjóra, hjúkrunarframkvæmdastjóra eða forstjóra, eftir atvikum. Ég er tilbúinn í spjall hvenær sem er.
Einnig bendi ég á að á heimasíðu heimilanna (www.grundarheimilin.is) er að finna ábendingarhnapp sem að má gjarnan nota til að koma ábendingum til okkar.
Sem sagt, vöndum samskiptin, hrósum þegar að við sjáum tilefni til við hvern sem er, ábendingar, ósætti og kvartanir skulu berast þeim sem að hafa ábyrgð og völd til að bregðast við þeim.
Kveðja og góða helgi
Karl Óttar Einarsson
Forstjóri Grundarheimilanna]]></description>
Mikilvæg störf
      <description><![CDATA[Eitt af því sem er  jákvætt í vinnustaðamenningu Grundarheimilanna er að við virðum störf hvors annars og áttum okkur á að vinnan okkar er mikilvæg og við hjálpumst að þegar á þarf að halda.
Auðvitað kemur fyrir að einhver gleymir sér og finnst sitt starf mikilvægara en annarra en það er mikilvægt að hafa í huga að við finnum fyrir því öll þegar vantar einhverja hlekki í keðjuna. Við höfum okkar styrkleika og veljumst til starfa sem henta okkar styrkleikum.
Í svona umfangsmikilli starfsemi er fjöldinn allur af fjölbreyttum störfum, alveg eins og á öllum heimilum. Það er eldhús, það er þvottahús, það þarf að þrífa, það þarf að skipta um perur, það þarf að sinna heilsurækt og heilsueflingu, hafa eitthvað fyrir stafni, það þarf að sinna fjölbreyttum líkamlegum þörfum og svo framvegis. 
Við erum góð í því sem að við gerum og ekkert gengi upp ef  það væri ekki farið út með ruslið eða skipt um ljósaperur. Hvert verkefni hjá okkur getur, ef því er ekki sinnt, komið í veg fyrir að við hin getum sinnt okkar hlutverkum. 
Við reynum líka að horfa út fyrir hlutverk okkar og aðstoðum samstarfsfólkið í öðrum verkefnum ef á þarf að halda. 
Það er mikilvægt að við höldum í þennan góða anda, berum virðingu hvert fyrir öðru og störfum hvers annars og léttum undir með vinnufélögunum þegar þarf þannig að allir hlutir gangi sem best. 
Þannig búum við til jákvætt starfsumhverfi og getum hlakkað til að mæta í vinnuna á hverjum degi. 
Kveðja og góða helgi
Karl Óttar Einarsson
Forstjóri Grundarheimilanna]]></description>
Sumarhátíðir
      <description><![CDATA[Í vikunni var veðrið dásamlegt og óhætt að segja að við höfum náð að nýta það á Grundarheimilunum. Sumarhátíðir voru haldnar en það er skemmtilegt að halda áfram að njóta sumarsins þrátt fyrir að margir haldi að sumarið sé búið um verslunarmannahelgi. Við vonum að þessar sumarhátíðir framlengi sumrinu og að við taki milt og gott haust.
Framkvæmdin var í höndunum starfsfólks iðjuþjálfunar og félagsstarfs sem og eldhúss sem fengu svo til liðs við sig frábæra listamenn.
Takk kærlega fyrir okkur. Að halda svona viðburði getur verið heilmikið átak en við erum með fjöldan allan af starfsfólki sem kom að þessumeð einum eða öðrum hætti. t.d. að fylgja okkar heimilisfólki og vera því innan handar og gleðjast saman.
Það var líka frábært að sjá að margir aðstandendur náðu að njóta með okkur. Kærar þakkir öll fyrir vikuna. Á facebook síðum heimilanna má sjá myndir af hátíðunum.
Við stefnum inn í haustið með frábærann hóp af starfsfólki. Ég vil nota tækifærið og þakka öllum þeim sem að komu til starfa í sumar á okkar heimilum. Sumir halda áfram að hluta með skóla, einhverjir halda áfram í hærra starfshlutfalli og aðrir hverfa til annarra verka. Kærar þakkir fyrir sumarið, og vonandi haldið þið sem flest áfram hjá okkur næsta sumar.
Facebook Grundar: https://www.facebook.com/GrundReykjavik
Facebook Áss: https://www.facebook.com/dvalaras
Facebook Markar: https://www.facebook.com/morkhjukrunarheimili
Kveðja og góða helgi
Karl Óttar Einarsson
Forstjóri Grundarheimilanna.]]></description>
Þetta hefur alltaf verið svona
      <description><![CDATA[Við festumst oft í viðjum vanans og einblínum stundum um of á hvernig við höfum alltaf gert hlutina. Við göngum inn í það sem okkur er kennt og höldum því áfram, verðum vélræn í leik og starfi og gerum eins og okkur er sagt. Dæmi um þetta er sagan af konunni sem eldaði alltaf kjötsúpu í tveimur pottum, af því að mamma gerði það alltaf þannig. Þegar mamman var spurð hvers vegna hún eldaði alltaf kjötsúpuna í tveimur pottum var svarið ósköp einfalt, hún átti bara aldrei nógu stóran pott. Við könnumst örugglega við þetta öll, að einhvern tíma hafi runnið upp fyrir okkur að við séum kannski að gera einhverja hluti undarlega „af því bara“.  Að íhuguðu máli sjáum við ef til vill einfaldari leiðir til að ná sama markmiði, nú eða jafnvel er eitthvað sem að við gerum bara algjör óþarfi. 
Mér finnst svo frábært þegar að ég heyri pælingar í þessa veru þ.e. af hverju? Það fylgir því líka vellíðan að komast að niðurstöðu um að gera eitthvað öðruvísi og getur létt af okkur einhverjum kvöðum. Við þurfum á sama tíma að bera virðingu fyrir ákveðnum hefðum og venjum hvar sem við komum, þetta er því oft fín lína.
Við skulum samt reyna að halda í gagnrýna hugsun og nýta tækifærið sem t.d. kemur með nýju fólki sem spyr um skrýtna hluti, að okkur finnst, og velta fyrir okkur hvort að það geti verið eitthvað til í því. 
Þegar spurt er spurninga er frábært að fá tækifæri til að útskýra hvers vegna hlutir eru með ákveðnum hætti. Allt samtal um hvernig og hvers vegna við gerum hlutina getur líka verið svo skemmtilegt og oft koma frábærar hugmyndir að breytingum þegar að leggjumst á eitt og kannski einföldum okkur vinnuna
Kveðja og góða helgi
Karl Óttar Einarssoon
forstjóri Grundarheimilanna]]></description>
Tilbreyting
      <description><![CDATA[Það er svo gaman að fylgjast með samstarfsfólki mínu hvað það er uppátækjasamt. Á facebook síðum heimilanna má sjá að nýlega hefur verið allskonar skemmtilegt uppbrot frá daglegu lífi. Íspinnadreifing, svalasamkeppni, gönguferðir, söngstundir útivið, spariboð og ég veit ekki hvað. Sólin sem hefur verið síðustu daga hjálpar heldur betur til við að lyfta andanum.
Það er skemmtilegt þegar við leyfum okkur að hugsa aðeins út fyrir boxið og hafa gaman í vinnunni á heimilum okkar heimilismanna. Þegar við njótum okkar við að gera skemmtilega hluti þá gleður það alla í kring. Höldum áfram að vera óhrædd við að fá nýjar hugmyndir og gera „spondant“ hluti, inni og úti við. Það er gaman að gera öðruvísi hluti, við getum öll komið með hugmyndir og sumar verða að veruleika og sumar breytast aðeins í framkvæmd eftir því sem aðstæður leyfa.
Aðeins brot af því sem að gerist hjá okkur á hverjum degi kemur í facebook fréttirnar. Ég veit að það er heldur betur margt fleira brallað innan og utanhúss sem veitir tilbreytingu í tilveruna.
Ég nota tækifærið og hvet aðstandendur til að vera með okkur í þessu ferðalagi, koma með hugmyndir og vera með í að koma hugmyndum í framkvæmd.
Kveðja og góða helgi,
Karl Óttar Einarsson
forstjóri Grundarheimilanna]]></description>
Að hafa hlutverk
      <description><![CDATA[Það skiptir okkur öll máli að hafa hlutverk í lífinu og á ólíkum æviskeiðum þá breytast hlutverkin okkar. Við höfum hlutverk í vinnu, í heimilishaldi, í uppeldi o.m.fl. Með hlutverki sem okkur er treyst fyrir og við finnum að skiptir máli höfum við tilgang.
Það eru mörg skref og flókin sem að þarf að taka þegar að við skipum um gír í lífinu og þurfum að finna okkur nýtt hlutverk eða verkefni þegar einu hlutverki eða verkefni lýkur. Dæmi um þetta er þegar að barnauppeldi lýkur og börnin fara að heiman, þegar við hættum á vinnumarkaði o.s.frv. Að fara á hjúkrunarheimili getur reynst mörgum erfitt sem að áður höfðu margvísleg hlutverk í sínu heimilislífi. Við sem störfum á þessum heimilum verðum að gæta þess að fólkið okkar upplifi sig ekki aðeins sem þiggjendur þjónustu heldur hafi ákveðin hlutverk.
Það er okkar að koma auga á möguleika til þess að skapa þessi hlutverk. Það vill enginn upplifa að hann sé óþarfur eða byrði. Dæmi um hlutverk sem við getum fundið á heimilunum okkar eru að leggja á borð, að taka af borðum, setja í eða taka úr uppþvotta/þvottavél, að brjóta saman þvott/tuskur, að brjóta saman servíettur, vökva blóm, raða einhverjum vörum í hillur og ótal margt fleira. Fólkið okkar er með mismunandi færni og hefur mismikla getu til að sinna þessum verkum komin á nýtt heimili, en útkoman og hvernig það er gert ætti að vera aukaatriði. Tuskurnar mega vera allskonar brotnar saman, servíetturnar mega vera allskonar, við erum heimili og allt má vera allskonar. Hjálpumst að við að finna verkefni við hæfi, þau þurfa ekki að vera stór eða flókin en geta skipt þann sem að fær verkefnið gríðarlega miklu máli.
Kveðja og góða helgi
Karl Óttar Einarsson
forstjóri Grundarheimilanna
Takk Framkvæmdasjóður aldraðra
Í vetur sóttu Grundarheimilin um styrki frá framkvæmdasjóði aldraðra en það er sjóður sem er fjármagnaður af skattgreiðendum sérstaklega (kemur fram á skattframtali eins og útvarpsgjaldið). Sjóðurinn hefur það hlutverk að byggja upp öldrunarþjónustu á Íslandi. Sótt var um styrk fyrir 16 verkefnum sem hljóðuðu upp á 200 milljóna framlag frá sjóðnum. Samþykkt voru 14 verkefni að fullu, að upphæð 195 milljónir, einni umsókn var hafnað og ein var samþykkt að hluta.
Heilbrigðisráðherra veitir styrki að fenginni tillögu frá stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra. Við (á Grundarheimilunum )erum gífurlega þakklát fyrir stuðninginn sem að við fáum með þessum hætti til að byggja upp húsnæði okkar og innviði þess til að bæta búsetu og starfsskilyrði þeirra sem að hjá okkur eru búa eða starfa (hverju sinni.)
Ég þakka heilbrigðisráðherra og stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra kærlega fyrir þetta framlag. Ljóst er að mikið þarf að vinna í húsnæði Grundar og Áss sérstaklega á næstu árum. Í Mörk er staðan betri húsnæðislega séð, enda eru þar allt einbýli með sér baðherbergi.
Samþykkt var núna að breyta deild A3 á Grund að mestu leyti á sama hátt og gert hefur verið á hæðinni fyrir neðan. Einnig var samþykkt klæðning á hjúkrunarheimilinu í Hveragerði, endurnýjun á brunakerfum, tæki til sjúkraþjálfunar á öllum heimilum og ýmislegt fleira stórt og smátt. Viðhaldi á þessum gömlu húsum okkar hefur alla tíð verið almennt vel sinnt og þvi búum við ágætlega að því þegar að kemur að endurnýjun.
Haldið er áfram að vinna í þessum breytingum en til þess að geta gert þetta hraðar þá þurfum við klárlega að fá greidda húsaleigu fyrir það húnsæði sem að við notum í þjónustu við okkar heimilisfólk.
Gísli Páll Pálsson, stjórnarformaður Grundar, hefur ritað marga pistla um það mál og ætla ég ekki að fara út í smáatriði hér en ítreka mikilvægið. Grundarheimilin saman standa af félögum sem að eru óhagnaðardrifin og allt fé heimilanna fer í starfsemi þeirra. Það er því ljóst að húsaleiga til okkar heimila færi ekki í neitt annað en í uppbyggingu og endurbætur hjá okkur. Sem er eitthvað sem allir sjá að er löngu tímabær og þörf ráðstöfun.
Ég treysti því og trúi að stjórnvöld séu að vinna að því hörðum höndum að leysa þessi mál þannig að við getum haldið áfram uppbyggingunni og nauðsynlegum endurbótum og skipuleggja það til framtíðar, vitandi af tryggum greiðslum.
Karl Óttar Einarsson
forstjóri Grundarheimilanna
p.s. mun halda pólitík í lágmarki í mínum skrifum, en komst ekki hjá því í þetta skiptið að koma aðeins inn á hana. 😊]]></description>
Kjarasamningar og sautjándi júní
      <description><![CDATA[Nýlega var gengið frá kjarasamningum allra starfsmanna Grundarheimilanna en Grundarheimilin eru aðilar að SFV (Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu) sem sér um að semja fyrir okkar hönd. Samningarnir eru í einhverjum tilfellum komnir til framkvæmda en aðrir eru í atkvæðagreiðslu. Verði þeir samþykkir verður greitt eftir þeim næstu mánaðarmót, afturvirkt frá 1. apríl.
Það er ákaflega ánægjulegt að þetta sé klárt og gott að þessari óvissu sé eytt og mikilvægum kjarabótum komið til minna samstarfsmanna. Samningarnir eru stuttir og því stutt í að taka þurfi upp þráðinn og semja að nýju.
Eitt af þvi sem við fáum mestar ábendingar um í starfsánægjukönnunum sem að við framkvæmum með reglulegu millibili er að laun séu of lág miðað við verkefni og ábyrgð. Í mörgum tilfellum er hægt að taka undir það að laun þyrftu að vera hærri til að standast samanburð við önnur störf í þjóðfélaginu og umönnunarstörf hafa lengi verið vanmetin.
Á vettvangi stjórnvalda og heildarsamtaka launþega er verkefni sem að snýr að jöfnun launa milli markaða, einmitt með það í huga að lyfta launum í umönnunarstörfum (heilbrigðisþjónusta og kennsla). Vona ég að hjúkrunarheimilin verði höfð í huga í þeirri vinnu og allar okkar stéttir.
Sautjándi júní er um helgina og óska ég öllum heimilismönnum, starfsmönnum og aðstandendum (heimilis- og starfsmanna) til hamingju með daginn. Á Grundarheimilunum reynum við að gera deginum hátt undir höfði með tilbreytingu í mat og dúkuðum borðum. Við berum virðingu fyrir því að sú kynslóð sem við erum að þjónusta núna stendur nær tímamótunum árið 1944 en við sem störfum á heimilunum. Þessi dagur skiptir heimilisfólk máli. Við megum ekki gleyma því hvaðan við komum og berum virðingu fyrir hefðunum og höldum daginn hátíðlegan.
Kveðja og góða helgi,
Karl Óttar Einarsson
Forstjóri Grundarheimilanna
p.s. hef fengið einhverjar ábendingar um að póstarnir séu of langir, hef því einn stuttan í dag og mun reyna að stytta þá sem að á eftir koma. Þó að ég lofi ekki að þeir verði eins stuttir og þessi.]]></description>
Kjarasamningar og sautjándi júní
      <description><![CDATA[Nýlega var lokið við að ganga frá kjarasamningum allra starfsmanna Grundarheimilanna en Grundarheimilin eru aðilar að SFV (Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu) sem sér um að semja fyrir okkar hönd. Samningarnir eru í einhverjum tilfellum komnir til framkvæmda en aðrir eru í atkvæðagreiðslu og verði þeir samþykkir verður greitt eftir þeim næstu mánaðarmót, afturvirkt frá 1. apríl. Það er ákaflega ánægjulegt að þetta sé klárt og gott að þessari óvissu sé eytt og mikilvægum kjarabótum komið til minna samstarfsmanna. Samningarnir eru stuttir og því stutt í að taka þurfi upp þráðinn og semja að nýju. Eitt af þvi sem við fáum mestar ábendingar um í starfsánægjukönnunum sem að við framkvæmum með reglulegu millibili er að laun séu of lág miðað við verkefni og ábyrgð. Í mörgum tilfellum er hægt að taka undir það að laun þyrftu að vera hærri til að standast samanburð við önnur störf í þjóðfélaginu og umönnunarstörf hafa lengi verið vanmetin. Á vettvangi stjórnvalda og heildarsamtaka launþega er verkefni sem að snýr að jöfnun launa milli markaða, einmitt með það í huga að lyfta launum í umönnunarstörfum (heilbrigðisþjónusta og kennsla). Vona ég að hjúkrunarheimilin verði höfð í huga í þeirri vinnu og allar okkar stéttir.
Sautjándi júní er um helgina og óska ég öllum heimilismönnum, starfsmönnum og aðstandendum (heimilis- og starfsmanna) til hamingju með daginn. Á Grundarheimilunum reynum við að gera deginum hátt undir höfði með tilbreytingu í mat og dúkuðum borðum. Við berum virðingu fyrir því að sú kynslóð sem við erum að þjónusta núna stendur nær tímamótunum árið 1944 en við sem störfum á heimilunum. Þessi dagur skiptir heimilisfólk enn meira máli en mörg okkar sem hér störfum. Við megum ekki gleyma því hvaðan við komum og berum virðingu fyrir hefðunum og höldum daginn hátíðlegan.
                                                                                                                                                                                      Kveðja og góða helgi,
Karl Óttar Einarsson
Forstjóri Grundarheimilanna
Aðstandendur
      <description><![CDATA[Mikilvægi aðstandenda fyrir heimilismenn er ótvírætt. Það tekur tíma  að fóta sig í nýju hlutverki eftir komuna á hjúkrunarheimilið. Hlutverk þeirra breytist oft talsvert og umönnunarbyrði er að stórum hluta létt af aðstandendum sem oft á tíðum hefur verið mjög þung í langan tíma. Þó starfsfólkið sinni nú athöfnum daglegs lífs  að miklu leyti þá er samt mikilvægt fyrir aðstandendur að halda áfram að sinna félagslegum þörfum heimilismanns að einhvejru leyti, en hafa meira val um að sinna skemmtilegri hlutum en beinni umönnun. Oft eru aðstandendur óöuggir um hvað má og hvað má ekki á hjúkrunarheimilinu.  Það er gott að hafa hugfast  að við sem að vinnum á heimilunum erum að vinna á heimilum fólksins, en það býr ekki á okkar vinnustað.
Leitast er við að hafa andrúmsloftið heimilislegt. Ein algeng spurning við komuna á hjúkrunarheimili er hvenær er heimsóknartími? Svar við þvi er einfaldlega þegar og eins lengi eða stutt og heimilismaðurinn sjálfur kýs að hafa heimsókn. Setjist niður með heimilismanni og allt í lagi að það sé á matmálstímum. Það veitir tilbreytingu, spjallið yfir matnum, aðstoðið ef þarf og þið viljið. Það er upplagt  að fara í gönguferðir, innandyra og utan, kíkja í bíltúr, á kaffihús, í heimsóknir út í bæ og hvað sem ykkur dettur í hug. (muna bara að láta starfsfólk vita af því). Hugmyndirnar eru margskonar, hægt er að lesa upp, spila tónlist eða á hljóðfæri, spila, spjalla, skoða myndir, baka vöffur, dansa og svo framvegis. Það er tilvalið að  að koma einn daginn með ísveislu til að njóta saman, eða uppáhalds mat fólksins ykkar og hægt að biðja starfsfólk um skálar og diska eftir þörfum og svo hjálpast  að við frágang, heimilismenn, aðstandendur og starfsfólk. Um að gera að bjóða öðrum heimilismönnum líka, það er bara kærkomin tilbreyting fyrir alla. Það er gefandi fyrir heimilisfólk að fá að bjóða öðrum með sér.
Við sem að vinnum á hjúkrunarheimilunum reynum eftir fremsta megni að koma með tilbreytingu í daglegt líf heimilisfólksins og margir starfsmenn hafa frumkvæði að allskonar skemmtilegum „uppákomum“.  Sjúkra- og iðjuþjálfun býður líka upp á allskyns þjónustu og virkni, sem sumir vilja taka þátt í en aðrir alls ekki. Okkar hlutverk er að hvetja til slíkrar þáttöku en við neyðum aldrei neinn sem að gefur skýrt til kynna að hann vilji ekki. 
Heimilin standa ykkur opin.
  Kveðja og góða helgi
Karl Óttar Einarssoon
forstjóri Grundarheimilanna
Ps:  Svæði sem að gaman er að ganga um og heimsækja á okkar heimilum:
Grund: á 3. hæð í miðjunni er falleg stofa og þar er  gaman  að setjast niður og spjalla. Þar er einnig barnahorn og oft mikið næði. Í starfsmannaborðsal á  1. hæð er velkomið að setjast. Þar er kaffivél sem að stendur öllum til boða að nýta. Hægt er að ganga innandyra yfir tengiganginn á 2. hæð, eða ganga utandyra í porti milli húsa. Ég veit að Grund virkar flókin fyrir þá sem að ganga ekki mikið um þar og erfitt að rata. Endilega spyrjið til vegar, að villast smá getur líka bara verið smá spennandi og hluti af ævintýraferð innanhúss 
Ás: Á hjúkrunarheimilinu í kjallaranum er setustofa við hliðina á lyftunni. Einnig er bjart og notalegt að setjast í sófa sem að eru inni í kapellunni, en hún á að standa opin. Kapellann er innst á ganginum í kjallaranum. Í Ási er setustofa og salur í Ásbúð og á Ásbyrgissvæðinu setustofa og salur í Ásbyrgi. Það er gott og gaman að skipta um umhverfi og fyrir þá sem að eru í útideildum að kíkja í kjallarann á hjúkruanrheimilinu eða á milli staða.
Mörk: Aðstaðan á herbergjum heimilisfólks er auðvitað ein sú besa sem að við höfum og þörf á að útbúa rými til heimsókna annarsstaðar því minni en á hinum heimilunum. Það er þó mikilvægt fyrir heimilismenn að breyta til og fara út af herberginu. Í Mörk erum við kapellu með sófa innaf stóra matsalnum á 1.hæð. Við höfum svo auðvitað frábært kaffihús sem að er um að gera að kíkja á.]]></description>
Sumarbyrjun ??
      <description><![CDATA[Nú styttist í sumarið, þó að veðurfarslega sé ekki að sjá það. Við vonum það besta og reiknum með að við fáum betra sumar eftir rysjótt vorið. Veðrið hefur sett strik í reikninginn hjá okkur á Grundarheimilunum t.d. hefur púttvöllurinn sem að við erum með í Mörkinni látið verulega á sjá. Við eigum von á því að geta opnað hann fljótlega, þó að hann verði ekki orðinn iðagrænn. Við leitum ráðlegginga til færustu golfvallarsérfræðinga í þeim efnum og fylgjum þeirra ráðum. Víða hafa nýþvegnir gluggar i Mörk og Ási líka fengið að kenna á rokinu og erfitt að sjá út.
Það sem að fylgir vorinu og upphafi sumars hjá okkur er svo fjöldinn allur af sumarstarfsfólki sem að kemur til starfa til að hleypa okkur sem að venjulega stöndum vaktina í kærkomið frí. Hópurinn er að venju stór og fjölbreyttur og hef ég notað tækifærið til þess að hitta nýliðana okkar sem að þegar eru komnir til starfa í nýliðafræðslu sem að er byrjuð hjá okkur á öllum heimilum. Næsti hópur byrjar svo í byrjun júní í fræðslunni, en fræðslan er keyrð í tveimur hópum þar sem að starfsmenn byrja á misjöfnum tímum. Við þetta tilefni hef ég notað tækifærið og kynnt þeim eitt það allra mikilvægasta sem að við verðum að hafa í huga við þjónustu þeirra sem að þurfa á okkar þjónustu að halda. Að mínu mati er það eitt af gildum Grundarheimilanna, virðing. Öll viljum við njóta virðingar og mikilvægt að við gætum þess í störfum okkur að gleyma því ekki í samskiptum við aðra. Við berum virðingu fyrir samstarfsfólki, heimilisfólki, aðstandendum o.fl. og ætlumst til að fá virðingu til baka. Við þurfum ekki að vera sammála til að sýna skoðunum og lífsýn annarra virðingu. Alltaf er gott að hafa hugfast hvað maður sjálfur myndi vilja þegar að einhver gengur mjög nálægt manni í að sinna persónulegum þörfum. Við þurfum líka að muna það að spyrja heimilisfólk hvað það vill og sýna skoðunum þeirra og vali viðringu með því að nálgast þau eins og við sjálf myndum vilja. Viljum við ekki vera spurð um hvað við viljum borða í morgunmat? Viljum við láta tala um okkur eða við okkur? Margt smátt sem að við getum gert sem að skiptir gríðarlegu máli.
Ég býð alla okkar frábæru nýliða velkomna til starfa og hvet þá sem að fyrir eru til að taka vel á móti þeim og aðstoða við fyrstu skrefin í nýju starfi. Það ferli er lærdóms ríkt fyrir okkur öll.
Þessi vikupóstur er minn fyrsti sem nýr forstjóri Grundarheimilanna. Ég nota tækifærið til að þakka stjórn Grundarheimilanna traustið sem að mér er sýnt með því að fela mér þetta starf. Ég hef notið fyrstu dagana í starfinu og hlakka til áframhaldandi samstarfs hér eftr eins og síðustu 12 ár þar á undan í öðru hlutverki. Ég auglýsi sömuleiðis eftir góðum hugmyndum að umfjöllunar efni, af nógu er að taka og flott að fá fleiri hugmyndir frá ykkur.
Kveðja og góða helgi
Karl Óttar Einarsson
forstjóri Grundarheimilanna]]></description>
Stjórnarformanni þakkað
      <description><![CDATA[Á stjórnarfundi Grundarheimilanna fyrir viku lét Jóhann J. Ólafsson stjórnarformaður af embætti sínu.  Jóhann hefur gegnt embætti stjórnarformanns í tæp tuttugu ár og staðið sig mjög vel.
Jóhann hefur alla tíð lagt mikla áherslu á stefnumótun og mikilvægi þess að horfa fram í tímann, bæði langt og stutt.  Hann stóð fyrir og mótaði okkar árlegu, og stundum tvisvar á ári, stefnumótunarfundi þar sem litið er til framtíðar, spáð og spekúlerað, ásamt því að líta í baksýnisspegilinn til að læra af því sem áður var gert.  Nýjar hugmyndir, hugsa út fyrir boxið og horfa á hlutina út frá viðskiptahagsmunum hafa einnig verið góðu kostir Jóhanns í stjórn Grundar sem hafa oft á tíðum komið heimilunum mjög vel.
Við Jóhann höfum ekki alltaf verið sammála, sem betur fer.  Mismunandi skoðanir gefa kost á rökræðum, velta fyrir sér kostum og göllum hvers máls fyrir sig og við höfum ávallt komist að sameiginlegri niðurstöðu, jafnvel niðurstöðu sem hvorugur okkar sá við upphaf rökræðna.  Með þannig mönnum finnst mér gott að vinna.
Fyrir hönd Grundarheimilanna þakka ég Jóhanni kærlega fyrir afar gott og farsælt samstarf og óska honum velfarnaðar.
Allt hefur sinn tíma.  Þessi pistill er sá síðasti sem ég sendi ykkur sem forstjóri Grundarheimilanna og þakka ég ykkur kærlega fyrir samfylgdina, lesturinn og mörg áhugaverð svör í gegnum árin.  Ég hef lært af ykkur og fengið góðar og uppbyggilegar athugasemdir í gegnum tíðina.
Kveðja og góða framtíð,
Gísli Páll, forstjóri Grundarheimilanna
Nýr forstjóri Grundarheimilanna
      <description><![CDATA[Í morgun samþykkti stjórn Grundarheimilanna að ráða Karl Óttar Einarsson sem nýjan forstjóra Grundarheimilanna frá og með 1. maí næstkomandi. Karl Óttar hefur unnið hjá Grundarheimilunum frá júní 2011. Fyrst sem bókari til ársins 2016, síðan fjármálastjóri og frá árinu 2019 hefur hann gegnt starfi sviðsstjóra rekstrar og fjármála. Karl Óttar er menntaður viðskiptafræðingur auk þess að vera með meistargráðu í reikningshaldi og endurskoðun. Hann er kvæntur Halldóru M. Gunnarsdóttur og eiga þau þrjú börn.
Á sama fundi var samþykkt að ráða undirritaðan í 50% starf stjórnarformanns Grundarheimilanna og tekur sú ráðning einnig gildi frá og með 1. maí næstkomandi. Ég er þar af leiðandi langt í frá hættur störfum fyrir Grundarheimilin enda þótt ég færi mig úr forstjórastólnum. Í þessu nýja hlutverki fæ ég kærkomið tækifæri til þess að einbeita mér að framtíðinni, skoða stór uppbyggingarverkefni og þróa þau í samstarfi við einkaaðila sem opinbera eftir því sem við á. Ég mun einnig sinna samskiptum við ríkisvaldið, ráðherra og ráðuneyti, þingmenn, borgar- og bæjarfulltrúa, Sjúkratryggingar Íslands og fleiri. Þá mun ég taka þátt í nefndarstörfum á vegum Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu og opinberra aðila, til dæmis um húsnæðismál hjúkrunarheimila.
Ég hef starfað hjá Grundarheimilunum í tæplega 33 ár, frá mánudeginum 17. september 1990.  Þetta hefur verið feikn skemmtilegur og á oft á tíðum annasamur tími. Bygging hjúkrunarheimilis í Ási í Hveragerði, stofnun og bygging hins tæknivædda þvottahúss í Ási sem þjónustar öll Grundarheimilin og uppbygging metnaðarfulla eldhússins okkar á sömu slóðum, sem m.a. sendir daglega heitar máltíðir og annan kost til Reykjavíkur, er á meðal þeirra verkefna sem við getum verið stolt af. Kaup okkar og bygging á íbúðum í Mörkinni auk reksturs á hjúkrunarheimili á sama stað stendur einnig upp úr. Fjölmörg önnur góð og brýn verkefni koma upp í hugann en of langt mál er að telja þau upp hér. Auðvitað var svo hundrað ára afmælið í fyrra merkur áfangi sem aldrei mun gleymast.
Ég hef kynnst og unnið með mörgum skemmtilegum, duglegum og kraftmiklum einstaklingum. Til að mismuna ekki eða gleyma einhverjum verður enginn nafngreindur hér en ég er afar þakklátur öllum þeim fjölda samstarfsmanna sem hafa farið með mér í gegnum ólgusjó síðustu þriggja áratuga. Þar hafa margir mjög góðir samherjar lagt hönd á plóg með afbragðs fagmennsku og endalausa þrautseigju í farteskinu.
Ég hef verið að velta þessum hlutverkaskiptum mínum fyrir mér í allnokkur ár og ekki síst eftir að ég festi sjónar á þeim möguleika fyrir margt löngu að Karl Óttar hefði allt það til að bera sem gæti gert hann að góðum forstjóra Grundarheimilanna. Ég sá það reyndar býsna fljótt og ráðning hans á sér því langan aðdraganda.
Til viðbótar við störf stjórnarformanns hyggst ég taka að mér einhver allt önnur störf innan Grundarheimilanna en ég hef sinnt hingað til. Þeim mun ég sinna í frítíma mínum frá stjórnarformennskunni og til þess að það sé alveg á hreinu mun ég þiggja laun fyrir þau störf samkvæmt þeim launatöxtum sem í gildi eru fyrir þá vinnu.
Með lækkuðu starfshlutfalli gefst mér svo kærkominn tími til að sinna ýmsu öðru en vinnunni. Einhverjir í svipuðum sporum og mínum myndu nota tækifærið og nefna samveru með fjölskyldu, en ég ætla að vera heiðarlegur.  Fleiri og kannski lengri skotveiðidagar koma fyrst upp í hugann. Ef til vill einhverjir auka golfhringir. Lestur góðra bóka. Langir göngutúrar. En þess utan eyði ég talsverðum tíma, finnst mér alla vega, með fjölskyldunni og þá sérstaklega Öldu eiginkonu minni og á því verður engin breyting. Að minnsta kosti ekki ef ég fæ að ráða.  Tel reyndar líklegt að þeim góðu stundum með Öldu og stórum hópi barna, barnabarna  og tengdabarna eigi eftir að fjölga frekar en hitt eftir þessa breytingu.
Kveðja og góða helgi,
Gísli Páll, verðandi stjórnarformaður Grundarheimilanna
Enn af snjallsímum 
      <description><![CDATA[Á  fjölmennum stefnumótunarfundi Grundarheimilanna sem haldinn var fyrr í þessum mánuði kom skýrt fram, bæði hjá heimilismönnum, aðstandendum og all mörgum starfsmönnum að snjallsímanotkun starfsmanna á vinnutíma væri of mikil.  Alltof mikil á köflum.  Og að við yrðum að bregðast við þessu með einhverjum skýrum hætti.
Þegar stórt er spurt verður oft fátt um svör.  Margar hugmyndir komu fram.  Banna alveg notkun þessara tækja, takmarka notkun þeirra með einhverjum hætti eða reyna  að stýra notkun þeirra þannig að vel sé.  Allt tiltölulega erfið markmið að mínu mati og eins og er þá sé ég enga hagstæða lausn.
Í málum sem þessum er oft gott að leita eftir sjónarmiðum annarra.  Hvernig hlutirnir eru gerðir annars staðar og nota það sem gengur vel.  Með pistli þessum óska ég eftir hugmyndum frá ykkur hvernig skynsamlegast væri að leysa þessa ofnotkun á snjallsímum í vinnutíma.  Veit vel að það er mitt hlutverk og annarra góðra starfsmanna Grundarheimilanna að finna lausnir sem þessar en ég spyr engu að síður.  Ef maður spyr ekki, þá fær maður ekki svör og ef til vill leynist góð lausn einhvers úti hjá ykkur.  Efast reyndar ekki um það, þetta vandamál er víðast hvar annars staðar.
Verstu hugmyndirnar/tillögurnar eru þær sem koma aldrei fram.
Kveðja og góða helgi,
Gísli Páll, forstjóri Grundarheimilanna]]></description>