    <language>is</language>
Mörk | Grundarheimilin
Guðrún Birna Gísladóttir er látin
Guðrún Birna Gísladóttir, fv. forstjóri hjúkrunarheimilisins Grundar, lést 20. október, 82 ára að aldri.
Guðrún fæddist á Grund við Hringbraut 1. júlí 1944. Foreldrar hennar voru Gísli Sigurbjörnsson forstjóri Grundar og Helga Björnsdóttir.
Guðrún varð þriðji ættliðurinn til að stýra Grund, en afi hennar, sr. Sigurbjörn Ástvaldur Gíslason, var á meðal stofnenda heimilisins. Guðrún ólst upp á Grund með heimilisfólkinu og upplifði vöxt og viðgang starfseminnar.
Árið 1965 giftist Guðrún sr. Páli Þórðarsyni og áttu þau þrjá syni; Gísla Pál, f. 1966, Þórð Björn, f. 1967, og Halldór Gunnar, f. 1975. Þau bjuggu í Neskaupstað frá 1973 en snjóflóðið i bænum 1974 var þeim mikið áfall líkt og samfélaginu öllu. Þau fluttu til Njarðvíkur 1975 er Páll varð þar sóknarprestur. Páll lést 1978, langt um aldur fram. Eftirlifandi eiginmaður Guðrúnar er Júlíus G. Rafnsson, fv. framkvæmdastjóri á Grund, og sonur þeirra er Kjartan Örn, f. 1982.
Guðrún starfaði lengi við hlið föður síns á Grund. Hún sat í stjórn heimilisins frá 1979 og tók við starfi forstjóra við andlát föður síns í ársbyrjun 1994. Var hún fyrsta konan hér á landi til að gegna forstjórastarfi á hjúkrunarheimili. Undir hennar stjórn stækkaði starfsemin til muna; byggt var við Grund, Hjúkrunarheimilið Ás var vígt 1998, rekstur Markar hófst 2010 og reistar voru þjónustuíbúðir fyrir aldraða.
Guðrún lét af störfum á 75 ára afmælisdegi sínum, 1. júlí 2019, eftir 52 ára starf á Grund. Sat hún í stjórn heimilisins til dánardags, átti sinn síðasta stjórnarfund daginn fyrir andlátið.
Guðrún var sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu á Bessastöðum 17. júní 2023, fyrir umönnun og þjónustu við aldraða. Hún hlaut þakkarviðurkenningu Félags kvenna í atvinnurekstri árið 2009.
Bleikur dagur
Það er eins og flestir vita líklega bleikur dagur í dag, vitundardagur á vegum Bleiku slaufunnar og Krabbameinsfélags Íslands. 🌸🌷
Á þriðju hæðinni í Mörk var ákveðið að minna rækilega á málstaðinn og allt skreytt hátt og lágt. Að auki var boðið upp á bleikar veitingar og svo klæddust flestir einhverju bleiku.
Frábær tilbreyting og allir sem vettlingi geta valdið tóku þátt í þessari skemmtilegu uppákomu.]]></description>
Nemendur buðu upp á stólajóga
Í gær fengum við skemmtilega heimsókn upp á aðra hæð hér í Mörk.  Fjórir nemendur úr Verslunarskóla Íslands komu til okkar en þar stendur yfir góðgerðarvika. ❤️
Ungmennin eru á fyrsta ári í Versló og buðu upp á  stólajóga og spiluðu síðan OlsenOlsen.
Frábær stund og allir ánægðir með þessa notalegu og skemmtilegu tilbreytingu. 🥰
 Í dag eigum við von á öðrum hópi frá Versló sem ætlar að mæta í morgunstund á fjórðu hæð]]></description>
Mætir í heimsókn með gítarinn
Fyrir mörgum árum bjó tengdamóðir Kristjáns Sigurðssonar, Lára Þorsteinsdóttir,  í Mörk. Þá mætti hann reglulega með gítarinn til að stytta henni og fólkinu á heimilinu stundir. Eftir að Lára dó hefur Kristján samt haldið uppteknum hætti og heimsækir nú reglulega heimilisfólkið og tekur gítarinn með sér.🎸
Kristján er einstakur og nær að hrífa alla með sér í söng og gleði. Margir tala um að þetta séu allra skemmtilegustu stundirnar þeirra. 
Takk kæri Kristján fyrir að gefa þér tíma til að koma í heimsókn í öll þessi ár og gleðja okkur með nærveru þinni. ]]></description>
Sumarhátíð á Grund
Sápukúlur, andlitsmálning, blöðrur, söngur, ilmandi popp beint úr vél og aðrar glæsilegar veitingar var á meðal þess sem boðið var uppá þegar sumarhátíð Grundar var nýlega haldin.
Vel mætt og veðrið lék við okkur.]]></description>
Sumarhátíð í Mörk
Það var kátt á hjalla í Mörk í gær þegar sumarhátíðin var hjá okkur. 
Tvíund hélt uppi stemmingunni, bornar voru fram frábærar veitingar frá eldhúsinu og svo vöktu poppvélin, andlitsmálarinn og svokallaður blaðrari verðskuldaða athygli.]]></description>
Opið hús í Ási
Fjölmargir lögðu leið sína  á opið hús á afmælisdegi Áss í gær þegar gefinn var kostur á að  skoða nýja hjúkrunarheimilið sem er að rísa. 
Gestum var boðið upp á kaffi og kleinur og fengu leiðsögn um þetta glæsilega heimili sem stefnan er að opna í febrúar á næsta ári.]]></description>
Opið hús sunnudaginn 26. júlí
Í tilefni af 80 ára afmæli Hveragerðisbæjar og 74 ára afmæli Áss 
verður nýja hjúkrunarheimilið sem rís norðan Hverahlíðar opið 
gestum sunnudaginn 26. júlí frá 14.00 – 17.00.
Boðið verður upp á kaffi og kleinur.
Allir velkomnir
Gísli Páll stjórnarformaður Grundarheimilanna]]></description>
Skemmtileg heimsókn
Þau eittu svo sannarlega tilbreytingu hér í Mörk krakkar úr vinnuskóla Reykjavíkur  sem komu til okkar  og spiluðu fyrir heimilisfólk.
Það var þungbúið svo flestir horfðu út um gluggann á þessa hressu krakka en nokkrir fóru út.
Hópurinn fer víða og gleður gesti og gangandi með lúðrasveitarhljómum. Frábær heimsókn. Takk fyrir komuna.]]></description>
Áttum fimm fulltrúa við útskrift um síðustu helgi
Við á Grundarheimilunum eru stolt að segja frá því að við áttum fimm fulltrúa við útskriftina hjá Háskólanum á Akureyri um síðustu helgi.
Hasthika Lankathilaka starfsmaður á Grund og Maria Florinda Da Silva Abranja starfsmaður á hjúkrunardeildinni í Ási luku grunndiplómu í fagnámi fyrir starfandi sjúkraliða með sérhæfingu í öldrunar- og heimahjúkrun.
Ragnhildur Rún Vilmundardóttir brautskráðist með BS gráðu í iðjuþjálfunarfræðum.
Fanney Björg Karlsdóttir og Guðrún Lilja Jóhannsdóttir brautskráðust með viðbótardiplómu í ráðgjöf í málefnum fólks með heilabilun.
Við óskum þeim hjartanlega til hamingju. ]]></description>
Blöðrur og fjör
Stundum eru nokkrar blöðrur og frauðplast allt sem þarf til að fá góða hreyfingu, gera daginn skemmtilegan og bregða á leik. 🎈
 María sjúkraþjálfari hér í Mörk fór um húsið og bauð upp á hreyfingu dagsins með þessum hætti.  Allir skemmtu sér konunglega.]]></description>
Lambið fékk ótal faðmlög frá heimilisfólkinu
Við fengum eftirminnilega heimsókn nýlega þegar lambið Kári kom í heimsókn í vinnuna með henni Ósk Reynisdóttur. Lambið býr á Hraðastöðum í Mosfellsdal en þar er lítill húsdýragarður.🐑
Lambið er svo sannarlega mannelskt og hefur ekkert á móti faðmlögum og knúsi og það fékk svo sannarlega nóg af því hjá heimilisfólkinu.
 Andlit ljómuðu og  það er öruggt að margir eiga eftir að rifja upp lengi vel þessa dásamlegu heimsókn]]></description>
Hátt á annað þúsund pönnukökur
Klukkan átta í morgun mættu þeir Ingvar Már yfirmatreiðslumeistari Grundarheimilanna og Benidikt bakari í eldhúsið í Mörk til að baka fyrir morgundaginn, 17. júní.
Alls baka þeir á um tíu pönnukökupönnum um  1.700 pönnukökur sem heimilisfólk, starfsfólk og íbúar hjá Íbúðum 60+ fá að gæða sér á eftir matinn eða með kaffinu á morgun.
Þeir búast við að klára baksturinn um hálfþrjú í dag]]></description>
Gönguferð í sólinni
Í sumar er heimilisfólki í Mörk boðið í gönguferðir á miðvikudögum og sólin skein svo sannarlega nú í vikunni þegar komið var út í garð. Dásamleg samvera og Rebekka mætti með gítarinn sinn og það var sungið af innlifun.]]></description>
Prjónaði peysu á barnabarnið
Heimiliskonan Steinunn Sveinsdóttir gerði sér lítið fyrir og prjónaði Íslandsbankapeysu fyrir dótturdóttur sína. Hún átti stundum í svolitlu strögli með munstrið en mætti galvösk í iðjuna og í sameiningu fundu snillingarnir þar útúr þessu með henni. Hún bætti svo um betur og prjónaði sokka og húfu í stíl.
Steinunn var eljusöm og frábært framtak hjá henni því að hún segir sjálf frá því að hún hafi á tímabili glatað færninni við að prjóna en neitað að gefast upp.🌞
Alltaf glöð og jákvæð hún Steinunn. Og hér er hún með dótturdóttur sinni Silvu á mynd sem er auðvitað alsæl með fallegu peysuna sína]]></description>
Tónlist í umönnun á Grundarheimilunum
"Það hefur sýnt sig að tónlist eykur vellíðan fólks og þegar við erum að tala um fólk með heilabilun eykurtónlist einnig virkni og minnkar 
depurð,“ segir Magnea Tómasdóttir,söngkona og tónlistarkennari í viðtali í Morgunblaðinu í morgun.
 Grundarheimilin hlutu  styrk frá Oddfellowsystrum í Rebekku stúku nr. 1, Bergþóru til að gera átak í að upplýsa um hvernig hægt er að nota tónlist í umönnun með stórkostlegum árangri.
Meðal þess sem Magnea gerir er að halda fyrirlestra fyrir starfsfólk Grundarheimilanna og aðstandendur um notkun tónlistar í daglegu lífi.]]></description>
Opið hús í vinnustofunni
Eftir hádegi á mánudögum og miðvikudögum og alla föstudaga koma heimilismenn niður á fyrstu hæð í Mörk og mæta í opið hús vinnustofunnar. 
Þá er spjallað, sumir prjóna, mála, fletta blöðum eða fást við eitthvað annað sem veitir þeim gleði.  Notalegar stundir og allir velkomnir.]]></description>
Er með vikulegar söngstundir í Mörk
Við erum svo heppin í Mörk að fá reglulega í heimsókn sjálfboðaliða frá Rauða krossinum. Einn þeirra er Steinar Frímannsson harmonikkuleikari. Hann gleður heimilisfólkið vikulega, spilar iðulega lög sem allir þekkja og úr verða notalegar söngstundir.]]></description>
Fékk lífsmarkamæli að gjöf
Nýlega komu félagar frá Oddfellow regludeildinni Þorfinni Karlsefni færandi hendi. Þeir færðu heimilinu lífsmarkamæli með standi og hleðslutæki. Slíkur búnaður kemur sér afskaplega vel fyrir heimilið. Við þökkum af alhug fyrir þessa rausnarlegu gjöf.
Á myndinni eru frá vinstri Ólafur Helgi Hreinsson, Gunnar Bergmann, Hannes Snorri Helgason og Einar Sigurður Sigurðsson frá regludeildinn og svo Þura Hreinsdóttir og Karl Óttar Einarsson frá Mörk. Fremst er Ari Sigurfinnsson að afhenda Katrínu Sigvaldadóttur mælinn.]]></description>
Dásamlegir tónleikar
Nýlega bárust dásamlegir tónar frá þriðju hæðinni hér í Mörk. Þangað voru þær mættar hörpuleikarinn Elísabet Waage og fiðluleikarinn Laufey Sigurðardóttir þar sem þær léku ljúf lög fyrir heimilisfólk og starfsfólk.
Yndislegir tónleikar. Hafið kæra þökk fyrir dásamlega heimsókn.]]></description>