    <language>is</language>
Ás | Grundarheimilin
Tónlist í umönnun á Grundarheimilunum
"Það hefur sýnt sig að tónlist eykur vellíðan fólks og þegar við erum að tala um fólk með heilabilun eykurtónlist einnig virkni og minnkar 
depurð,“ segir Magnea Tómasdóttir,söngkona og tónlistarkennari í viðtali í Morgunblaðinu í morgun.
 Grundarheimilin hlutu  styrk frá Oddfellowsystrum í Rebekku stúku nr. 1, Bergþóru til að gera átak í að upplýsa um hvernig hægt er að nota tónlist í umönnun með stórkostlegum árangri.
Meðal þess sem Magnea gerir er að halda fyrirlestra fyrir starfsfólk Grundarheimilanna og aðstandendur um notkun tónlistar í daglegu lífi.]]></description>
Forsetaheimsókn í Ás
Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir heimsótti Ás í gær ásamt eiginmanni sínum, Birni Skúlasyni. Tilefnið var 80 ára afmæli Hveragerðisbæjar. 🇮🇸
Stjórnarformaður Grundarheimilanna, Gísli Páll Pálsson ásamt forstjóra Karli Óttari Einarssyni, tóku á móti forsetahjónunum og Birna Sif Atladóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar í Ási flutti stutt ávarp.  
Forsetinn lýsti yfir ánægju með heimsóknina og sagði það bera vott um gott samfélag þar sem hlúð væri að börnum og öldruðum.
Heimilisfólkið var spennt fyrir komu forsetahjónanna sem gáfu sér góðan tíma til að heilsa upp á bæði þá sem búa í Ási og eru í dagdvöl.  Að lokum var afmælissöngurinn tekinn fyrir afmælisbörn dagsins.]]></description>
Göngugarpar í Ási
Við byrjuðum með mánudagsgöngurnar á ný í gær. Fólk hafði á orði að þetta væri eins og Lóan, sannkallaður vorboði þegar starfsfólkið í iðjuþjálfun blési í göngulúðra.
Sigrún flutti ljóð um virðingu eftir Kristján Hreinsson við mikla ánægju viðstaddra.
Göngugarpar í neðri byggð virtu fyrir sér framkvæmdirnar við nýja hjúkrunarheimilið úr fjarlægð meðan þeir í efri byggð stilltu sér upp og reyndu að leiðbeina iðnaðarmönnunum]]></description>
Fjólublár bekkur og alzheimer
Í vikunni var von á fulltrúum Alheimersamtakanna í Ás þar sem fyrirhugað var að bjóða  upp á fræðslu fyrir starfsfólk um heilabilun.
Af þessu tilefni var ákveðið að leita á náðir herramanna í trésmiðjunni hér hjá okkur og þeir beðnir um að gefa gömlum bekk nýtt líf.  
Bekkurinn var málaður fjólublár en það er litur Alzheimer sjúkdómsins og annarra heilabilunarsjúkdóma. Alzheimersamtökin hafa unnið að vitundarvakningu um Alzheimer og er átakið Munum leiðina einn liður í henni. Það felst í því að koma upp fjólubláum bekkjum í sveitarfélögum víða um land.
Nú er fjólublái bekkurinn kominn fyrir framan hjúkrunarheimilið og nýtur sín þar vel.
Það var vel mætt á fræðsluna og starfsfólk áhugasamt.]]></description>
Furðuverur tóku á móti syngjandi börnum
Öskudagurinn er ávallt tekinn með trompi í Ási og mikil stemning. Og allir hjálpast að við undirbúninginn. Þaulvön heimiliskona aðstoðaði til dæmis Guðrúnu Lilju við að gera hárið fínt. Börn úr bænum kíktu við og sungu og hittu á ferð sinni um heimilið allskonar furðuverur sem tóku vel á mót börnunum.]]></description>
Gömlu góðu lögin slá alltaf í gegn
Sönghópurinn Tjaldur kemur reglulega hingað í Ás og syngur með heimilisfólki. Gömul góð lög hljóma og allir taka undir og syngja með.  Frábærar stundir með þessum góðu vinum okkar. Takk fyrir komuna og hlökkum til að taka á móti ykkur næst.]]></description>
Lífssagan mikilvæg
Þegar fólk flytur á Grundarheimilin er afar hjálplegt að fá upplýsingar um heimilismanninn sem veita innsýn í líf hans áður en flutt var á Grund, Mörk eða í Ás. 
Oft er minnið farið að svíkja þegar flutt er á hjúkrunarheimili og þá er frábært fyrir starfsfólk að geta flett myndaalbúmi þar sem svipmyndum er brugðið upp af ævi viðkomandi með texta þar sem fram koma nöfn fólks sem er á myndum og skyldleiki eða frekari upplýsingar um það sem myndin hefur að geyma. 
Þannig getur ágrip af sögu heimilismanns oft verið kveikja að umræðum og starfsmenn geta kynnst heimilismanninum ögn betur en ella með því að sjá myndir af honum frá liðnum árum eða fjölskyldunni. Hvaðan er hann, hverjir skipta hann máli, hver var starfsvettvangur, hvaða áhugamál hafði hann og svo framvegis.
 Veggspjald hefur reynst vel 
Líklega miklar fólk stundum fyrir sér að útbúa lífssögu.+Á netinu er hægt að útbúa skemmtilegar myndabækur.  En veggspjöld eru líka viðráðanleg og oft eru skemmtilegustu lífssögunar einmitt þannig. Þá er hægt að ljósrita myndir úr ævi heimilismanns og líma á veggspjald með stuttum texta.  
Við heyrðum sögu frá fjölskyldu eins heimilismanns. Barnabörnin fengu það hlutverk að útbúa lífssögu ömmu til að hengja upp á vegg. Börnin áttu dýrmætar stundir með ömmu sem rifjaði upp með þeim gamla tíma og afraksturinn varð persónulegt veggspjald um ömmu. 
Tilvalið er svo að leyfa veggspjaldinu að hanga uppi á vegg í herbergi ömmu eða afa.
Við fengum góðfúslegt leyfi til að birta hér nokkur dæmi um hvernig hægt er að útbúa svona veggspjöld eða síður í albúm.]]></description>
Bygging hjúkrunarheimilis í Ási er á áætlun
Framvinda byggingar hjúkrunarheimilisins í Ási gengur vel og er verkið á áætlun en hjúkrunarheimilið í Ási er eitt þriggja heimilanna sem er undir hatti Grundarheimilanna.
Gísli Páll Pálsson, stjórnarformaður Grundarheimilanna, segir að þessa dagana sé  verið að reisa veggi fjórða og síðasta hlutans sem er að austanverðu. 
 "Búið er að steypa þakplötu á hina þrjá hlutana og hiti kominn á þá.  Frágangi þaks á fyrsta húsi að vestanverðu er lokið að fullu og þar með talið að hífa úthagatorf á þakið.  Það hefur hjálpað verulega til hversu tíðarfarið hefur verið gott í vetur en ekki síður að Húsvirki sem er verktaki verksins hefur staðið sig mjög vel.
Forsteyptar einingar eins og húsið er byggt úr hefur stytt byggingartímann verulega og hefur húsið risið á undrafljótan hátt."]]></description>
Tilkynning vegna tölvuárásar á Grundarheimilin
Þessi tilkynning er send til núverandi og fyrrverandi íbúa Grundarheimilanna (Grund, Mörk og Ás), aðstandenda íbúa, skjólstæðinga, umsækjenda og íbúa í íbúðum 60+ í Mörkinni, starfsfólks Grundarheimilanna sem og verktaka sem starfa eða hafa starfað fyrir heimilin. 
Líkt og fram hefur komið í fjölmiðlum urðu Grundarheimilin fyrir fjandsamlegri tölvuárás. Árásin fólst í því að tölvuþrjótar brutust inn á netþjóna og komust þannig inn í kerfi þar sem finna má upplýsingar um núverandi og fyrrverandi íbúa, aðstandendur, skjólstæðinga, starfsfólk og verktaka heimilanna.
Búið er að loka fyrir aðgang tölvuþrjótanna og ljóst þykir að engum gögnum eða upplýsingum hefur verið eytt eða þeim breytt. Heimilin hafa áfram fullan aðgang að öllum upplýsingum sem kerfin innihalda og árásin hefur því takmörkuð áhrif haft á þá þjónustu sem heimilin veita íbúum og skjólstæðingum. Rannsókn hefur þó leitt í ljós að áður en að tölvuárásin uppgötvaðist tókst tölvuþrjótunum að afrita hluta af þeim upplýsingum sem finna mátti í kerfum heimilanna.
Þær persónuupplýsingar sem vitað er á þessari stundu að afritaðar voru eru eftirfarandi, um eftirfarandi flokka einstaklinga:
Skjólstæðingar, íbúar og aðstandendur 
•	tengiliða- og samskiptaupplýsingar skjólstæðinga, íbúa og aðstandenda, 
•	upplýsingar um greiðslur skjólstæðinga og íbúa, 
•	heilsufarsupplýsingar sem tengjast umönnun, 
•	upplýsingar sem tengjast veittri heilbrigðisþjónustu á heimilunum, s.s. vegna lyfjagjafa, skráningu á rannsóknarniðurstöðum, læknabréfum og viðtölum og
•	upplýsingar um óvænt atvik (eftir því sem við á).
Íbúar og umsækjendur um íbúðir 60+ í Mörkinni og aðstandendur
•	tengiliða- og samskiptaupplýsingar og 
•	upplýsingar um greiðslur íbúa.
Starfsfólk og fyrrverandi starfsfólk
•	samskipta- og tengiliðaupplýsingar, 
•	bankaupplýsingar, 
•	upplýsingar um lífeyris- og stéttafélagsaðild og
•	launaupplýsingar.
Verktakar
•	samskipta- og tengiliðaupplýsingar, 
•	reikningsupplýsingar og 
•	afrit af reikningum. 
Ekkert bendir til þess að þessar upplýsingar hafi verið birtar og tölvuþrjótarnir hafa ekki hótað slíkri birtingu.
Rannsókn árásarinnar stendur enn yfir með aðstoð færustu sérfræðinga landsins á þessu sviði. 
Í ljósi viðkvæms eðlis þessara upplýsinga eru viðtakendur hvattir til að vera á varðbergi gagnvart mögulegri misnotkun á upplýsingunum af hálfu tölvuþrjótanna. Ef grunur vaknar um slíka misnotkun þá skal gæta fyllstu varúðar í samskiptum, bregðast ekki við, heldur láta okkur vita eða tilkynna um atvikið til CERT-IS netöryggissveitarinnar. Rétt er að árétta að Grundarheimilin munu ekki senda út neina pósta að fyrrabragði þar sem fólk er beðið um að senda upplýsingar eða ýta á hlekki.
Rætt verður við alla íbúa Grundarheimilanna og þeir upplýstir um stöðu málsins. 
Við höfum opnað fyrir sérstakan upplýsingasíma ef einhverjar spurningar vakna. Fulltrúi Grundarheimilanna svarar í síma 530-6200 og í gegnum netfangið personuvernd@grund.is. Síminn er opinn frá kl. 10 til 14 næstu daga.
Búið er að tilkynna um árásina til Persónuverndar, Landlæknis og CERT-IS netöryggissveitarinnar í samræmi við það sem áskilið er í lögum og starfsleyfi heimilanna. Einnig er verið að undirbúa kæru til lögregluyfirvalda.
Grundarheimilin munu halda viðtakendum upplýstum eftir því sem málinu vindur fram.
Við þökkum fyrir skilninginn á meðan við komumst til botns í málinu.
Karl Óttar Einarsson, forstjóri Grundarheimilanna
Tölvuárás á Grundarheimilin
Takmarkað netaðgengi er á Grundarheimilunum í varúðarskyni vegna tölvuárásar sem uppgötvaðist síðdegis í gær. Áhrifa þessa gætir einnig á símkerfi og tölvupóst. Unnið er að því með færustu sérfræðingum að leita að uppruna árásarinnar og koma kerfunum upp að nýju í forgangsröð út frá mikilvægi. Reikna má með að áhrifin verði a.m.k. einhver næstu daga. Þá er unnið að því að tilkynna málið til opinberra aðila, s.s. Persónuverndar, Cert-IS og Embætti landlæknis. 
Við höfum sent aðstandendum upplýsingar á sms eins og við höfum getað, það kann að vera að einhverjir hafi fengið skilaboð sem að ekki eru lengur aðstandendur hjá okkur. Við biðjumst velvirðingar á því.
Við munum halda aðstandendum upplýstum eftir því sem málið þróast.
Jólakransar á aðventu
Það er hefð fyrir þvi að útbúa fallega jólakransa á aðventunni hér í Ási. Heimilismenn hittust nýlega til að útbúa kransa og ýmiskonar jólaskraut til að skreyta með hér í Ási. 
Eins og alltaf var andrúmsloftið létt og kátt]]></description>
Tónlistarbingó vinsælt
Það er alltaf gaman þegar tónlistarbingó er á dagskrá hér hjá okkur í Ási. 
Eins og ávallt var vel mætt og andrúmsloftið létt og skemmtilegt.]]></description>
Gott að eldast í Hveragerði
Í dag hafa Heilbrigðisstofnun Suðurlands og Hveragerðisbær gert samning við Ás hjúkrunarheimili um samþætta heimaþjónustu við íbúa í Hveragerði frá 1. september nk. Verkefnið er tilraunaverkefni sem að byggist á aðgerðaráætlun Gott að eldast sem að er samstarfsverkefni milli Félags- og húsnæðismálaráðuneytis og Heilbrigðisráðuneytis. Ás mun þannig sinna heimahjúkrun og félagslegum heimastuðningi við íbúa Hveragerðisbæjar 60 ára og eldri sem sækja um og fá samþykkta slíka þjónustu. Áður hefur í Ási verið starfrækt dagdvöl ásamt því að þaðan hafa íbúar Hveragerðisbæjar sem óskað hafa eftir fengið mat sendan heim.]]></description>
Hélt tónleika í Ásskála
Guðný Alma, sem er sumarstarfsmaður hér hjá okkur í Ási, söng fyrr í sumar fyrir heimilismenn í Bæjarási. Nýlega mætti hún aftur og söng við undirleik unnusta síns Péturs Nóa Stefánssonar. 🥰
Að þessu sinni söng hún fyrir heimilismenn í Ásskála. Viðtökurnar voru frábærar enda syngur Guðný Alma eins og engill. 👏
Tónlistarbingó sló í gegn
Bingó er alltaf vinsælt og flestir spenntir að taka þátt. Heimilismenn á hjúkrunarheimilinu voru yfir sig hrifnir af tilbreytingunni  þegar boðið var upp á tónlistarbingó.  🥰
Það er eflaust stutt í að aftur verði boðið upp á bingó þar sem tónlist kemur við sögu.]]></description>
Færðu Heilsustofnun tvö eplatré
Heilsustofnun í Hveragerði fagnaði 70 ára afmæli á dögunum.  Forsvarsmenn Grundarheimilanna mættu í afmælishófið og færðu Heilsustofnun tvö eplatré að gjöf.  Á myndinni eru frá 
 vinstri Ingi Þór Jónsson markaðsstjóri Heilsustofnunar, hjónin Gísli Páll Pálsson stjórnarformaður Grundarheimilanna og  Alda Pálsdóttir framkvæmdastjóri Íbúða 60+ í Mörk, Þórir Haraldsson forstjóri Heilsustofnunar  og Karl Óttar Einarsson forstjóri Grundarheimilanna. ]]></description>
Sumarstarfsmaður bauð upp á tónleika
Guðný Alma er sumarstarfsmaður í Bæjarási. Í vikunni kom hún ásamt unnusta sínum, Pétri Nóa Stefánssyni, og hélt tónleika fyrir okkur. 
 Ljúfir og notalegir tónleikar. Takk innilega fyrir okkur]]></description>
Ýmislegt bardúsað í góða veðrinu
Hér í Ási höfum við nýtt góða veðrið að undanförnu og bardúsað ýmislegt. 
Einn daginn fórum við og tíndum falleg blóm í Hverahlíðinni og fórum svo í gegnum Ásbyrgi. 
Við enduðum daginn á að fá okkur  Gatorade til að fylla á söltin í hitanum og bjuggum til keilu úr flöskunum. 
Virkilega góður dagur og allir sáttir í þessu dásamlega veðri.]]></description>
Litríku sumarblómin sett niður
Samvinna var lykilorðið þegar kom að því að setja niður sumarblómin í Bæjarási. Heimilisfólk ásamt starfsfólki úr iðjunni tók höndum saman og sá til þess að litrík sumarblómin blasa nú við þegar gengið er út á veröndina.]]></description>
Gáfu heimilisfólki Grundarheimilanna konfekt fyrir 17. júní
Það er gaman að segja frá því að fulltrúar frá Nói Síríus höfðu samband og spurðu hvort ekki mætti gleðja heimilisfólk Grundarheimilanna með konfekti á 17. júní. 🌰
 Því var að sjálfsögðu vel tekið og í morgun fengu öll heimilin þrjú svona sendingu, Grund, Mörk og Ás.
 Takk kærlega fyrir að hugsa svona fallega til okkar og hér verður sko boðið upp á konfekt með kaffinu á þjóðhátíðardaginn, þökk sé Nóa Síríus. 🇮🇸]]></description>